Lífið

Leikarinn Ryan O'Neal látinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Ryan O'Neal lést í dag 82 ára að aldri eftir áralöng veikindi.
Ryan O'Neal lést í dag 82 ára að aldri eftir áralöng veikindi. Getty

Bandaríski leikarinn Ryan O'Neal er látinn 82 ára að aldri.

Hann var þekktastur fyrir leik sinn í myndinni Barry Lyndon og sjónvarpsþáttunum Bones en stormasamt samband hans við Förruh Fawcett vakti einnig mikla athygli í gegnum árin.

Sonur leikarans, Patrick O'Neal, greindi frá fréttunum á Instagram-síðu sinni fyrr í kvöld. Þar kemur fram að Ryan hafi látist friðsamlega á heimili sínu.

Menningarbarn, boxari og vonlaus faðir

O'Neal fæddist 20. apríl 1941 í Los Angeles og var menningarbarn, sonur leikkonu og rithöfundar. Áður en hann lagði fyrir sig sviðslistir var hann áhugamannaboxari og keppti í alls 22 bardögum.

Þegar fjölskylda O'Neal flutti til Munchen á sjötta áratugnum fékk hann áhuga á sviðslistum og ákvað að leggja leiklistina fyrir sig. Hann braust síðan fram á sviðið árið 1964 þegar hann lék í sjónvarpsáttunum Peyton Place.

Þaðan fór hann yfir í kvikmyndir en hans þekktustu myndir eru Love Story, What’s Up, Doc?, Paper Moon og Barry Lyndon þar sem hann lék samnefnda aðalpersónu. Eitt af síðustu verkefnum O'Neal í sjónvarpi voru sakamálaþættirnir Bones sem nutu mikilla vinsælda hér á landi. 

Hér fyrir neðan má sjá rosalegt atriði úr Barry Lyndon sem Stanley Kubrick leikstýrði.

O'Neal átti stormasamt samband við Hollywood-stjörnuna Förruh Fawcett, fyrst frá 1979 til 1997 og svo aftur frá 2001 til 2009 en hún lést það ár. Hann átti ekki heldur gott samband við börn sín sem slitu sambandi við hann vegna vímuefnanotkunar hans. Sjálfur viðurkenndi hann að hafa verið vonlaus faðir.

Hann greindist með hvítblæði árið 2001 og ristilkrabbamein árið 2012. Þá glímdi hann við bæði alkohólisma og misnotaði vímuefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×