Skoðun

Friðarhugvekja

Guðjón Jensson skrifar

Í janúar 1961 átti sér stað vestur í Bandaríkjunum athöfn sem þar er haldin ætíð á sama stað á áþekkum tíma. Tilefnið er að fráfarandi forseti ávarpar þjóð sína og felur eftirmanni sínum það vald sem fylgir forseta Bandaríkjanna.

Dwigth Eisenhower hélt eftirminnilega ræðu sem oft hefur verið síðan vitnað til. Þessi forseti varð heimskunnur í síðari heimstyrjödinni fyrir að vera æðsti yfirmaður bandaríkjahers í Evrópu á miklum örlagatímum. Sjálfsagt hefur enginn annar haft jafnmikla yfirsýn á vopnabúnað, styrjaldatækni og allt það sem lýtur að ófrið. Og hvað sagði þessi furrum yfirhershöfðingi og fráfarandi forseti þennan janúardag 1961.

Hann aðvaraði bandarísku þjóðina og þar með alla heimsbyggðina gagnvart sífellt vaxandi hernaðarumsvifum. Taldi hann mikla vá fyrir dyrum að hergagnaframeiðslan væri sífellt að færa sig upp á skaftið að ná undirtökunum við stjórn Bandaríkjanna og þar með heimsins.

Um þessa óvenjulegu ræðu fyrrum yfirhershöfðingjans hafa margir fundir verið haldnir sem og ráðstefnur. Það hafa verið ritaðar fjöldinn allur af bókum um þessa ræðu og margt hefur verið ritað og rætt undir áhrifum varnaðarorða forsetans fyrrverandi.

Í haust sem leið gerðu Hamas skæruliðasamtökin mjög ámælisverða og fólskulega árás á Ísrael. Ekkert er það sem afsakar þessi voðaverk. En hugum dálítið hvað síðan hefur gerst:

Varla leið sólarhringur frá þessum árásum að gríðarstórar herflutningaflugvélar lentu troðfullar af hergögnum í Ísrael. Gróflega hefur þeim verið flogið 12-15.000 km og um 12 tímabelti frá austurströnd BNA. Og síðan hafa verið framdar gríðarlegar árásir gegn öllum þeim sem búa á Gaza og engum hlíft að undanskyldum nokkrum dögum þá um vopnahlé örfáa daga var samið. Áleitin spurning er hvort þetta hafi allt verið af ráðnum hug komið í kring? Þvilík grimmd gangvart óbreyttum borgurum hefur vart þekkstt í langan tíma.

Og nú á dögunum var borin upp tillaga af framkvæmdarstjóra Sameinuðu þjóðanna um áframhaldandi vopnahlé. Þá gerist það að fulltrúi mesta hernaðarveldis heims, BNA beitir neitunarvaldi. Bretar sátu hjá. Mátti ekki gera hlé á gróðavoninni að selja enn meira af vopnum?

Það er sérkennilegt að á dögunum bárust þær fréttir frá BNA að hagvöxtur þar í landi hefur lengi vel ekki mælst meiri. Hernaðarumsvif BNA hafa því miður haft mikil áhrif á hagvöxt og er miður að framleiðsla og sala vopna sé megindrifkraftur efnahagslífsins þar vestra.

Mannréttindi og lýðræði er af mörgum veraldlegum forystumönnum ekki talin vera svo mikilvæg. Það er eins og ekkert megi trufla gróðavonina og hagvöxtinn. Mannúðin er ekki talin upp á margra fiska virði talin.

Við minnumst hryllilegra einræðisherra fortíðarinnar. Hvort nöfn Benjamins Natayaho og Wladimir Pútins bætast við, skal ekkert fullyrða. Því miður er framkoma þeirra beggja gagnvart mannkyninu hreint skelfileg og þeirra minnst sem einhverra verstu friðarspilla heimsbyggðarinnar.

Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×