Lífið

Cardi B og Offset hætt saman

Bjarki Sigurðsson skrifar
Cardi B og Offset eiga tvö börn saman, Kulture Kiari Cephus og Wave Set Cephus.
Cardi B og Offset eiga tvö börn saman, Kulture Kiari Cephus og Wave Set Cephus. Getty/Shareif Ziyadat

Rappparið Cardi B og Offset er hætt saman. Þau hafa nokkrum sinnum áður hætt saman en nýlega hefur verið uppi orðrómur um að Offset hafi haldið fram hjá Cardi.

Cardi staðfesti sambandsslitin í beinni útsendingu á Instagram-síðu sinni í nótt. Þar ávarpaði hún líka orðróm um að Offset hafi haldið fram hjá sér með öðrum rappara, Chrisean Rock.

Chrisean Rock og barnsfaðir hennar Blueface.Getty/Prince Williams

„Mér er sama hvað kemur í ljós því ég er búin að vera einhleyp um tíma. Ég vissi bara ekki hvernig ég ætti að láta heiminn vita af því,“ sagði Cardi. 

Ásakanirnar um framhjáhald Offset komu frá fjórða rapparanum sem nefndur er hér á nafn, Blueface. Sá er barnsfaðir Chrisean og birti færslur um meint framhjáhald á Twitter-síðu sinni um helgina. Offset hefur neitað ásökununum. 


Tengdar fréttir

Cardi B og Offset skilja

Tónlistarkonan Cardi B hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum rapparanum Offset.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×