Innlent

Ein­hliða við­skipta­þvinganir gegn Ísrael þjóni engum til­gangi

Magnús Jochum Pálsson og Heimir Már Pétursson skrifa
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, sat fyrir svörum á Alþingi í tengslum við afstöðu Íslands til niðurstöðu öryggisráðsins og viðskiptaþvinganna á hendur Ísraelsmönnum.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, sat fyrir svörum á Alþingi í tengslum við afstöðu Íslands til niðurstöðu öryggisráðsins og viðskiptaþvinganna á hendur Ísraelsmönnum. Vísir/Sigurjón

Utanríkisráðherra telur ekki ráðlegt að Ísland ráðist ein þjóða í þvingunaraðgerðir gegn Ísrael til að knýja á um vopnahlé á Gaza. Almennt fari Ísland ekki þá leið að slíta stjórnmálasambandi við aðrar þjóðir, ekki einu sinni Rússa.

Í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag sagði Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, alþjóðasamfélagið hafa brugðist Palestínumönnum og Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, tók í svipaðan streng. 

Báðar spurðu þær utanríkisráðherra hvort til greina kæmi að slíta viðskiptum og jafnvel stjórnmálasambandi við Ísrael vegna hernaðarins á Gaza. Þá kölluðu þær eftir afstöðu Íslands á væntanlegum neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.

Þvingunaraðgerðir hafi mest áhrif með samtakamætti

„Hver eru næstu skref Íslands og samstarfsríkja okkar eftir að Bandaríkin beittu neitunarvaldi í öryggisráðinu á föstudag? Telur utanríkisráðherra að viðskiptaþvinganir eða einhvers konar refsiaðgerðir geti komið til greina til að setja þrýsting á Ísraelsríki?“ spurði Kristrún Bjarna á þinginu.

„Það er hægt að segja um þvingunaraðgerðir almennt að þær hafa langmest áhrif þegar samtakamáttur ríkja er nýttur. Nú eru ekki umræður um það á alþjóðavettvangi að beita slíkum úrræðum,“ svaraði Bjarni.

Einhliða viðskipaþvinganir þjóni engum tilgangi

„Mig langar að spyrja hæstvirtan ráðherra hvort önnur ríki hafi farið að fordæmi Íslands og ályktað um ástandið. Eða, vegna þess að spurningin gerist sífellt ágengari um slit á stjórnmálasambandi, hvort einhver ríki hafi gert það nú þegar?“ spurði Steinunn Þóra Bjarna.

Bjarni sagði Bólivíu og Belís hafa slitið stjórnmálasambandi við Ísrael og átta ríki kallað sendiherra eða diplómata heim.

„Ég ætla bara að segja það sem mína skoðun almennt að ég sé ekki í fyrsta lagi að það þjóni neinum tilgangi fyrir okkur að fara í einhliða viðskiptaþvinganir. Og almennt höfum við ekki viljað fara þá leið að slíta stjórnmálasambandi. Við gerðum það einu sinni í tilviki Breta. Við höfum ekki gert það gagnvart Rússum og það getur skaðað diplómatíska möguleika okkar að gera slíkt,“ sagði Bjarni að lokum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×