Innlent

Segir það ekki þjóna hags­munum Palestínu að Ís­land slíti stjórn­mála­sam­bandi

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, flutti á Alþingi munnlega skýrslu um stöðuna sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs.
Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, flutti á Alþingi munnlega skýrslu um stöðuna sem uppi er fyrir botni Miðjarðarhafs. Vísir/Arnar

Utanríkisráðherra segir það ekki þjóna hagsmunum neins, og ekki heldur Palestínu, að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael vegna framgöngu þeirra á Gasa. Ráðherrann flutti munnlega skýrslu um stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs á Alþingi fyrir hádegi.

Í munnlegu skýrslunni taldi Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, upp öll þau skref sem Ísland hefur stigið til að milda þjáningu palestínsku þjóðarinnar. Til að mynda hefðu íslensk stjórnvöld margfaldað framlög til mannúðaraðstoðar á Gasa síðustu vikurnar og einnig til rannsóknar á ábendingum um stríðsglæpi.

Í gærkvöldi sagði Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að ekkert muni stoppa Ísraelsmenn. Sótt verði fram til fullnaðarsigurs þrátt fyrir þrýsting frá alþjóðasamfélaginu og vísaði þar til yfirlýsingar neyðarfundar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað var eftir vopnahléi.

Bjarni sagði að það væri skiljanlegt að fólk vildi leita allra leiða til að hafa áhrif á átökin en um það hefur verið spurt á Alþingi hvort Ísland hefði í hyggju að ýmist slíta stjórnmálasambandi við Ísrael eða beita ríkið viðskiptaþvingunum.

„Hins vegar eru engar heimildir í lögum og engin fordæmi fyrir því að Ísland setji á einhliða viðskiptaþvinganir. Við innleiðum aðgerðir Evrópusambandsins og Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og munum gera það áfram.“

Engar umræður í þá veru hafi verið ræddar á alþjóðavettvangi.

„Það þjónar ekki hagsmunum neins og ekki heldur Palestínu að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael. Stjórnmálasamband milli ríkja er forsenda þess að koma afstöðu sinni á framfæri, eiga samskipti og hafa áhrif. Í sögulegu ljósi hefur Ísland aðeins einu sinni slitið stjórnmálasambandi við Breta í þriðja þorskastríðinu í febrúar 1976.“

Á morgun heldur utanríkisráðherra út til Ósló þar sem utanríkisráðherrar Norðurlandanna, Benelux landanna og nokkurra Arabaríkja munu koma saman. Þá mun ráðherrann eiga tvíhliða fund með utanríkisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar.

„Fundurinn er tækifæri til að ræða friðarhorfur, heyra viðhorf annarra og koma afstöðu okkar á framfæri,“ sagði Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra.


Tengdar fréttir

Varar við hruni hjálpar­starfs á Gasa­ströndinni

Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir ástandið fyrir íbúa Gasastrandarinnar vera sambærilegt því að búa í helvíti. UNRWA ber ábyrgð á því að dreifa neyðaraðstoð til íbúa Gasastrandarinnar.

Trúir ekki á einhliða þvingunaraðgerðir gegn Ísrael

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra telur ekki ráðlegt að Ísland ráðist ein þjóða í þvingunaraðgerðir gegn Ísrael til að knýja á um vopnahlé á Gasa. Þá er óvíst hvernig Ísland muni ráðstafa atkvæði sínu á neyðarfundi Sameinuðu þjóðanna því þar fari fram „lifandi samtöl“ og hlutir geti breyst hratt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×