Þriðji leikur Bar­ca í röð án sigurs

Raphinha leikmaður Barcelona í baráttunni í leiknum í kvöld.
Raphinha leikmaður Barcelona í baráttunni í leiknum í kvöld. Vísir/Getty

Barcelona lék í kvöld þriðja leik sinn í röð án sigurs þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Valencia á útivelli. Barcelona tapaði um síðustu helgi fyrir spútnikliði Girona og svo einnig fyrir Royal Antwerp í Meistaradeildinni á vikunni.

Lærisveinar Xavi vildu þess vegna koma sér aftur á beinu brautina og næla í nauðsynleg þrjú stig á Mestalla-leikvanginum. 

Leikurinn í dag var markalaus eftir fyrri hálfleikinn en á 55. mínútu kom Joao Felix Barcelona í 1-0. Á 70. mínútu jafnaði hins vegar Hugo Guillamon metin fyrir Valencia og þar við sat. Barcelona var sterkari aðilinn í leiknum og fékk færi til að tryggja sér sigur en tókst það ekki.

Barcelona er áfram í þriðja sæti La Liga. Liðið er fjórum stigum á eftir Real Madrid og sex sigum á eftir Girona sem bæði eiga leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira