Innlent

Ó­víst með fund um helgina og næsta verk­fall yfir­vofandi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Sigríður Margét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA, Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara og Arnar Hjálmsson formaður flugumferðarstjóra.
Sigríður Margét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA, Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara og Arnar Hjálmsson formaður flugumferðarstjóra. Vísir

Sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara segir stöðuna í kjaradeilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins snúna. Hún verði í sambandi við samninganefndir um helgina en ekkert hafi verið ákveðið með framhaldið. Verði af næstu vinnustöðvunum flugumferðarstjóra mun það hafa áhrif á næstum hundrað flugferðir. 

Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara ákvað að fresta fundi í kjaradeilu Flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í dag. Hún hefur ekki boðað til nýs fundar. Aðspurð um hvort það megi búast við að hún boði til fundar um helgina svara hún.

„Ég þori ekki alveg að segja til um það að svo stöddu en ég mun vera í sambandi við nefndirnar á næstu dögum og taka ákvörðun í samráði við þau.“

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði í fréttum í gær að flugumferðarstjórum hefði verið boðið sömu hækkanir og þegar hafi verið samið um við aðrar stéttir. Arnar Hjálmsson formaður flugumferðastjóra sagði þeir horfi til atvinnuflugmanna í sinni kröfugerð.

Samtök atvinnulífsins kröfðust þess fyrir Félagsdómi að næsta verkfall flugumferðarstjóra sem boðað er til aðfaranótt mánudags, væri dæmt ólögmætt því ekki hefði verið boðað til þess með lögmætum fyrirvara. Félagsdómur úrskurðaði í dag að það hefði verið gert. Einn af fjórum dómurum skilaði sératkvæði þar sem hann taldi að fallast ætti á kröfur SA. 

Áhrif á næstum hundrað flugferðir

Verði af næstu vinnustöðvun sem boðað er, frá klukkan fjögur aðfaranótt mánudags til klukkan tíu á mánudagsmorgun,  mun það hafa áhrif á fimmtíu flugferðir á Keflavíkurflugvelli, 18 komuflug og 31 brottfararflug.  Flugumferðarstjórar hafa einnig boðað til verkfalls aðfaranótt fimmtudags á sama tíma. Verði að því mun það hafa áhrif á alls 47 flugferðir, 17 komuflug og 47 brottfararflug. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×