Körfubolti

KR-ingar búnir að finna nýjan Kana

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Nimrod Hilliard IV mun leika með KR á yfirstandandi tímabili í 1. deild karla í körfubolta.
Nimrod Hilliard IV mun leika með KR á yfirstandandi tímabili í 1. deild karla í körfubolta. Jürgen Kessler/picture alliance via Getty Images

Körfuknattleiksdeild KR hefur samið við Nimrod Hilliard IV á yfirstandandi tímabili í 1. deild karla í körfubolta.

KR-ingar sögðu upp samningi sínum við Bandaríkjamanninn Troy Cracknell fyrr í vikunni, þrátt fyrir stórleik leikmannsins í hans síðasta leik fyrir félagið. Cracknell skoraði 58 stig og tók tíu fráköst í 123-99 sigri KR gegn Þrótti Vogum í 16-liða úrslitum VÍS-bikars karla síðastliðinn mánudag.

Nimrod Hilliard IV er hins vegar genginn í raðir KR-inga í hans stað, en félagið greinir frá tíðindunum á heimasíðu sinni.

Þar kemur meðal annars fram að Hiliard sé þrítugur bandarískur bakvörður sem eigi að baki glstan feril í Evrópuboltanum.

Hilliard hefur meðal annars leikið með liðum í Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi og var hann valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar í Danmörku er hann varð danskur meistari með Horsens á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku. 

Þá hefur Hilliard leikið með tveimur úr þjálfarateymi KR á ferli sínum. Hann lék með Jakob Erni Sigurðarsyni hjá Boras í sænsku deildinni og Adama Darboe með Bakken Bears í dönsku deildinni þar sem þeir félagar urðu danskir meistarar saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×