Lífið

Kendall Jenner og Bad Bunny hætt saman

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Parið á tískuvikunni í Milan í vor.
Parið á tískuvikunni í Milan í vor. Getty

Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner og rapparinn Bad Bunny eru hætt saman ef marka má heimildir erlendra slúðurmiðla. 

Samkvæmt heimildum People hefur parið nú slitið samvistum en parið er sagt hafa byrjað saman í febrúar þegar það sást á tvöföldu stefnumóti með stjörnuparinu Justin og Hailey Bieber. 

Jenner og Bad Bunny, sem heitir réttu nafni Benito Antonio Martínez Ocasio, sáust síðast saman í október í eftirpartýi skemmtiþáttanna Saturday Night Live, en Bad Bunny kom fram í þeim þáttum. Síðan þá hefur ekki sést til þeirra saman og heimildir herma að sambandinu hafi verið slitið. 

Bad Bunny er samkvæmt topplistum Spotify árið 2023 annar mest spilaði tónlistarmaður á streymisveitunni næst á eftir Taylor Swift. Meira en 77 milljón notendur Spotify hlusta á hann mánaðarlega.

Þá er Jenner ofarlega á listum yfir tekjuhæstu fyrirsætur heims. Að auki á hún að baki glæstan feril sem raunveruleikastjarna í þáttunum um Kardashian fjölskylduna. Því er um að ræða eitt allra frægasta par Hollywood. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×