Fótbolti

Alaba þriðji leik­maður Real Madrid sem slítur krossband í ár

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
David Alaba leikur ekki meira á þessu tímabili.
David Alaba leikur ekki meira á þessu tímabili. getty/Alvaro Medranda

Real Madrid vann Villarreal, 4-1, í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Meiðsli Davids Alaba skyggðu þó á sigurgleði Madrídinga.

Alaba meiddist eftir rúman hálftíma og strax var ljóst að meiðslin væru alvarleg. Nacho kom inn á fyrir Austurríkismanninn.

Eftir leikinn staðfesti Real Madrid að Alaba hefði slitið krossband í hné. Hann hefur því leikið sinn síðasta leik á þessu tímabili.

Alaba er þriðji leikmaður Real Madrid sem slítur krossband í hné á þessu tímabili. Áður höfðu Thibaut Courtois og Éder Militao lent í því sama.

Jude Bellingham, Rodrygo, Brahim Díaz og Luka Modric skoruðu mörk Real Madrid í leiknum á Santiago Bernabéu í gær.

Með sigrinum komst Real Madrid á topp spænsku úrvalsdeildarinnar. Girona getur endurheimt toppsætið með sigri á Alavés í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×