Innlent

Hús­næðis­málin alls ekki á góðum stað

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur.
Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur. Vísir/Egill

Bæjarstjóri Grindavíkur trúir því að flestir íbúar bæjarins muni snúa aftur til síns heima þegar það er talið óhætt. Ýmislegt vanti þó upp á þjónustu til að það sé mögulegt. Fjölmargar fjölskyldur eru í óhentugu húsnæði og margir í mjög erfiðri stöðu fjárhagslega. 

Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur var gestur í Reykjavík síðdegis. Þar var farið yfir stöðuna eins og hún blasir við núna, en beðið er eftir nýju hættumati Veðurstofunnar sem væntanlegt er á miðvikudag og sker mögulega úr um hvort Grindvíkingum verði leyft að eyða jólunum heima.

Fannar segist ekki viss um að margir myndu endilega vilja gista í bænum yfir hátíðirnar, en margir myndu eflaust vilja komast heim og njóta einnar eða tveggja góðra máltíða heima. Sjálfur hafði hann séð fyrir sér að eyða jólunum í íbúð sem hann er með á leigu. Þá vanti margt upp á til að hægt verði að leyfa íbúum að flytja aftur í bæinn.

„Ég á ekki von á að það verði mjög margir sem vilja endilega flytja heim strax heldur vilji sjá hvernig aðstæðurnar verða endanlega. Það er sáralítil þjónusta í bænum eins og er. Til dæmis hafa skólarnir okkar ekki verið starfræktir, frekar en önnur þjónusta í bænum í bænum og börnum hefur verið komið fyrir í skólum annarsstaðar.“

Mikið vantar upp á þjónustu

Búið er að leggja mat á skemmdir á mannvirkjum í bænum á þeim fasteignum sem voru sýnilega skemmdar. Þá hafa verið gerðar miklar endurbætur á gatnakerfinu sem skemmdist mikið sem og á vatnsleiðslum, rafmagns- og fráveitukerfum.

Það má kannski ekki alltaf mikið út af bera með þessi kerfi, en eins og sakir standa núna er þetta í lagi og virka ágætlega.

Fannar segir þó margt vanta upp á til að starfsemi bæjarins komist í eðlilegt horf.

„Það sem ekki er til staðar eru grunn-og leikskólar, öldrunarþjónusta. Stjórnsýsla Grindavíkur er í Reykjavík þó það sé auðvitað tiltölulega fljótlegt að færa hana til. Það er ekkert félagsstarf, íþróttastarf né er sundlaugin i rekstri. Bókasafnið er komið í bráðabirgðahúsnæði í Reykjavík og tónlistarskólinn líka. Það er enginn heilsugæsla og verslanir ekki opnar. Þannig að það vantar mikið til að bæjarfélagið sé komið í samt lag.“

Aðspurður um hvaða tilfinningu hann hafi fyrir því hversu margir muni snúa aftur, segir Fannar að vissulega séu sumir sem geti ekki hugsað sér að koma aftur.

„En við finnum líka að ýmsum hafa snúist hugur eftir að hafa fengið að koma og njóta stundanna sinna heima, fengið sér kaffibolla og lagst í sófann og bara fundið hvað það er gott að geta komið heim. Þannig að ég hef fulla trú á því að langflestir komi til með að skila sér aftur heim til Grindavíkur þegar ástandið er orðið eðlilegt. Það byrjar kannski á barnlausum fjölskyldum og svo týnast fleiri og fleiri eftir því sem við getum bætt þjónustuna hjá okkur, en vonandi náum við Grindvíkingar vopnum okkar, sem allra fyrst og getum farið að lifa eðlilegu lífi í okkar frábæra samfélagi og bæjarfélagi.“

Miklar skemmdir urðu á gatnakerfum Grindavíkur í kjölfar öflugrar skjálftahrinu þann 10. nóvember.Björn Steinbekk

Margir eigi mjög erfitt fjárhagslega

Fannar segir marga íbúa í erfiðri stöðu fjárhagslega, séu að borga af tveimur húsnæðum.

„Og það má ekki gleyma því að margir hafa misst vinnuna sína og þó það sé verið að bæta upp tekjutap með launaviðbótum þá eiga ýmsir mjög erfitt. Húsnæðismálin eru alls ekki á góðum stað. Það er það sem við höfum mestar áhyggjur af. Allt of margar fjölskyldur eru í bráðabirgðar- eða óhentugu húsnæði.“


Tengdar fréttir

Sagður eyðileggja fyrir Grindvíkingum með hegðun sinni

Veitingamanni í Grindavík var hótað handtöku í gærkvöldi þegar hann ætlaði að gista í bænum í nótt. Lögreglukona sagði hann eyðileggja fyrir öðrum Grindvíkingum með hegðun sinni. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir mögulegt að Grindvíkingar fái að fara heim fyrir jól.

Segir óskiljanlegt að halda Grindavík áfram lokaðri

Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Almannavarnir og Veðurstofuna harðlega fyrir að halda Grindavík áfram lokaðri. Að sínu áliti sé lokunin og framlenging hennar ekki réttlætanleg frá sjónarhóli jarðfræðings sem rannsakað hafi eldfjöll í sextíu ár.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×