Enski boltinn

Styrktarþjálfari Liverpool reddaði Söru fundinum með Klopp og Van Dijk

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Barón Jónsson og Sara Sigmundsdóttir sjást hérmeð Andreas Kornmayer.
Snorri Barón Jónsson og Sara Sigmundsdóttir sjást hérmeð Andreas Kornmayer. @snorribaron

Heimir Hallgrímsson og styrktarþjálfari Liverpool komu við sögu þegar við fengum útskýringu á því hvernig ein besta CrossFit kona Íslands fékk aðgengi að knattspyrnustjóra og fyrirliða Liverpool strax eftir stórleikinn við erkifjendurna frá Manchester.

Sara Sigmundsdóttir fékk nefnilega að upplifa frábæran dag á Anfield um helgina þótt að úrslitin hafi ekki alveg fallið með Liverpool liðinu.

Snorri Barón Jónsson er umboðsmaður Söru og var með henni í för á leik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Sara sagði frá því á sínum miðlum að hún hitti Jürgen Klopp og Virgil van Dijk en Snorri sýndi meira frá ferðinni þeirra á sinni Instagram síðu.

Þar kom líka fram að það var Andreas Kornmayer, styrktarþjálfari Liverpool, sem reddaði Söru og Snorra þessum fundi með Klopp og Van Dijk.

„Fyrir þremur árum kynntist ég Andreas Kornmayer, aðalstyrktarþjálfara Liverpool þökk sé Heimi Hallgrímssyni, fyrrum landsliðsþjálfara Íslands. Hann var að kanna betur hugmyndir sínar tengdar CrossFit og þá sérstaklega hvað varðar Söru Sigmundsdóttur. Það varð ekkert úr því að við fórum í samstarf en okkur varð vel til vina og við höfum haldið sambandi síðan þá,“ skrifaði Snorri Barón Jónsson.

„Þar sem að Sara er mikill stuðningsmaður Liverpool þá var það alltaf í spilunum fyrir okkur að fara og hitta Andreas, fara á leik og fá sýnishorn í það hvað hann er að gera þarna. Sú ferð varð loksins að veruleika um helgina og hún var einfaldlega stórkostleg. Bæði upplifunin af bitra andrúmsloftinu á leik erkifjendanna Liverpool and Man Utd en einnig að sá fagmennsku hans með berum aurum. Það var stórfengileg ferð sem við gleymum aldrei,“ skrifaði Snorri.

Snorri birti líka með myndir og myndbönd af því þegar þau fengu aðgengi að leiðtogum Liverpool liðsins. Það má sjá þetta hér fyrir neðan. Með því að fletta myndunum er hægt að sjá myndir og myndbönd frá heimsókninni á Anfield. Ef Instagram færslan birtist ekki er gott ráð að endurhlaða fréttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×