Íslenski boltinn

Heiðursstúkan: Aron hræddur um að tapa enn einu sinni fyrir Birni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron Jóhannsson mætti Birni Snæ Ingasyni í fyrsta þætti annarrar þáttaraðar Heiðursstúkunnar.
Aron Jóhannsson mætti Birni Snæ Ingasyni í fyrsta þætti annarrar þáttaraðar Heiðursstúkunnar. stöð 2 sport

Önnur þáttaröð Heiðursstúkunnar hefur hafið göngu sína á Vísi. Fimm þættir verða sýndir fyrir áramót og fimm eftir áramót.

Í fyrsta þætti annarrar þáttaraðar mætir Víkingurinn Birnir Snær Ingason Valsmanninum Aroni Jóhannssyni. Viðfangsefni spurninganna er Besta deild karla.

Aron viðurkenndi að hann væri smeykur að tapa enn einu sinni fyrir Birni en Víkingur varð bæði Íslands- og bikarmeistari á síðasta tímabili á meðan Valur endaði í 2. sæti Bestu deildarinnar og féll snemma út úr Mjólkurbikarnum.

Þáttinn má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Heiðursstúkan - Besta deild karla

Fyrstu seríu af Heiðursstúkunni má finna með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×