Lífið

Stjörnulostinn þing­maður tíu árum síðar

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín ásamt Laufeyju og Juniu sem stilltu sér upp á mynd með þingmanninum.
Þorgerður Katrín ásamt Laufeyju og Juniu sem stilltu sér upp á mynd með þingmanninum. ThorgerdurK

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar var stjörnulostin þegar hún rakst á tvíburasysturnar Laufeyju Lín og Juniu Lin Jónsdætur í verslun í Garðabænum.

Þorgerður var dómari í sjónvarpsþáttunum Ísland got Talent á Stöð 2 fyrir áratug þar sem Laufey Lín vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína.

„Tæpum 10 árum eftir Ísland got Talent rekst ég á þessar einstöku systur og snillinga. Ég var dálítið stjörnuslegin,“ segir Þorgerður Katrín á Instagram.

Laufey og Junia eru komnar til Íslands í kærkomið jólafrí. Laufey Lín hefur slegið í gegn á árinu sem er að líða og ekki síst á samfélagsmiðlum þar sem hún nýtur aðstoðar tvíburasystur sinnar.

Eðli máls samkvæmt hefur Laufey Lín þróast mikið sem tónlistarkona undanfarinn rúman áratug. Í safni Vísis má finna fjölmörg myndbönd af stórstjörnunni sem tilnefnd er til Grammy-verðlauna í ár.

Laufey Lín syngur Singing in the Rain í Leitinni að jólastjörninni árið 2011.

Árið eftir söng hún lagið Glæddu jólagleði í þínu hjarta.

Svo var komið að Ísland got Talent árið 2014 þar sem Laufey fór á kostum. Hún komst því miður ekki í úrslitin á endanum en er óumdeilanlega sá keppandi sem hefur náð lengst í tónlistinni, nú níu árum síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×