Fótbolti

Tók rosa­legt æðis­kast eftir sigur­mark Real

Sindri Sverrisson skrifar
Luis García reif meðal annars í einn af aðstoðarmönnum sínum en allir reyndu þeir að láta eins og ekkert væri á meðan að stjórinn gekk af göflunum.
Luis García reif meðal annars í einn af aðstoðarmönnum sínum en allir reyndu þeir að láta eins og ekkert væri á meðan að stjórinn gekk af göflunum. Samsett/Getty

Óhætt er að segja að Luis García, þjálfari Alavés, hafi misst stjórn á skapi sínu og rúmlega það þegar liðið fékk á sig mark í lokin á leik við Real Madrid í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gær.

Lucas Vázquez tryggði tíu leikmönnum Real 1-0 sigur með skallamarki eftir horn á síðustu mínútu. Vissulega svekkjandi en sjaldan hafa sést önnur eins viðbrögð og hjá García.

Hann byrjaði á að sparka í kælibox á hliðarlínunni, gekk um öskrandi og reif svo í einn af aðstoðarmönnum sínum sem sat í sakleysi sínu. García var ekki runnin reiðin og hann reif sig úr úlpunni, kastaði henni í grasið og sömuleiðis húfunni sinni, áður en hann settist niður. En í sætinu hélt skapofsinn áfram og hann sparkaði og öskraði, eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.

Það fyrsta sem Vázquez sagði við fréttamenn eftir leikinn var að hann langaði ekkert til að ræða um æðiskastið, og hvað þá að horfa á það í endursýningu. Hann sagði þó:

„Við hefðum átt að senda boltann þangað [benti á hinn vallarhelminginn] og þá hefði þetta verið búið. Í staðinn skorar leikmaður einn og óáreittur. Ég er reiðari yfir því en að við höfum misst boltann. Lucas má ekki fá að vera einn þarna. Menn verða að vita hvað þeir eiga að gera.“

Þetta var þriðja tap Alavés í röð og fer liðið inn í nýja árið í 16. sæti spænsku deildarinnar, aðeins þremur stigum frá fallsæti. Real Madrid komst hins vegar upp fyrir Girona á markatölu, á topp deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×