Erlent

Meint mansals­vél fékk að fara frá Frakk­landi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Til stóð að fljúga vélinni, sem er rúmensk, til Níkaragva. Síðan var hún kyrrsett í Frakklandi. Eftir það fór hún til Indlands.
Til stóð að fljúga vélinni, sem er rúmensk, til Níkaragva. Síðan var hún kyrrsett í Frakklandi. Eftir það fór hún til Indlands. Christopher Ena/AP

Flugvél sem hafði verið kyrrsett í Frakklandi frá því á fimmtudag, vegna gruns um að farþegar hennar væru fórnarlömb mansals, var flogið til Indlands í dag. 

Greint er frá því á vef breska ríkisútvarpsins að vélinni hafi verið flogið frá Vatry-flugvelli í Frakklandi til Indlands, með 276 indverska farþega innanborðs. Vélin, sem er ein fjögurra sem fljúga undir merkjum rúmenska félagsins Legend Airlines, var kyrrsett í Frakklandi á fimmtudag. 

Eftir að vélin lenti í Frakklandi barst lögreglu nafnlaus ábending um að tveir farþeganna gætu tengst mansalshring. Þeir voru þá teknir í varðhald. Lokaáfangastaður vélarinnar var, en 25 hinna 311 sem þá voru um borð í vélinni sóttu um hæli í Frakklandi, þar sem vélinni var lent til að taka eldsneyti.

Talið er að flestir farþeganna hafi verið indverskir ríkisborgarar sem starfa í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Frönsk yfirvöld virðast hafa talið mögulegt að skipuleggjendur ferðarinnar hafi ætlað að koma fólkinu til Níkaragva, og þaðan til Bandaríkjanna í gegnum Mexíkó.

Ekki liggur fyrir hvort rannsókn málsins leiddi í ljós að ekkert saknæmt væri á seyði, áður en kyrrsetningu vélarinnar var aflétt. Þá er einnig óljóst af hverju vélin hélt til Mumbai í Indlandi, í stað þess að halda til Níkaragva, þangað sem förinni var upphaflega heitið. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×