Innlent

Auðunn látinn taka skellinn

Jakob Bjarnar skrifar
Katrín var ekki til viðtals um annað en að Auðunn tæki pokann sinn eftir að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um vopnahlé í Gasa.
Katrín var ekki til viðtals um annað en að Auðunn tæki pokann sinn eftir að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um vopnahlé í Gasa. Vísir/Vilhelm/Sendiráð Íslands í Helsinki

Auðunn Atlason, sem gegndi stöðu sérfræðings í alþjóðamálum í forsætisráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, var látinn súpa seyðið af samskiptaleysi því sem leiddi til þess að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu alls­herj­arþings Sam­einuðu þjóðanna.

Talsverð læti urðu vegna afstöðu Íslands í þessari atkvæðagreiðslu sem fram fór á vettvangi Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 28. október. Ísland sat hjá meðan 120 ríki greiddu atkvæði með tillögunni um mannúðarhlé á átökunum á Gasa, 12 ríki greiddu atkvæði gegn henni og þar fóru Bandaríkin og Ísrael fremst í flokki en 45 ríki sátu hjá - þar á meðal öll Norðurlöndin að Noregi frátöldu. 

Hjáseta Íslands hefur verið túlkuð sem fylgispekt við Bandaríkin.

Annað hvort „lítilsvirt“ eða „ósannsögul“

Bjarni Benediktsson var tekinn við stöðu utanríkisráðherra þegar þetta var en reiðin sneri þó fyrst og síðast gegn Katrínu. „Annaðhvort er hún lítilsvirtasti eða ósannsögulasti forsætisráðherra í sögu lýðveldisins,“ sagði Illugi Jökulsson, einn harðasti gagnrýnandi Katrínar, 30. október á Facebook-síðu sinni. 

Og hann var ekki einn um að gagnrýna Katrínu. Hjáseta Íslands þótti ganga í berhögg við allt sem Vinstri grænir segjast vera. Þingflokkur Vinstri grænna sagði í yfirlýsingu að flokkurinn hefði viljað greiða atkvæði með tillögunni.

Katrín átti sem sagt í vök að verjast í málinu og sagði að ekki hefði verið haft samráð við sig. Málið þótti vera þess eðlis að þar hlyti að þurfa að eiga sér stað samtal milli forsætis- og utanríkisráðherra.

Var talað um klúður í samskiptum hins nýja utanríkisráðherra og hefur Vísir heimildir fyrir því að Auðunn Atlason, sem lengi hefur starfað innan utanríkisþjónustunnar og gegndi stöðu sendiherra í Vín og Finnlandi á tímabili, hafi verið látinn taka skellinn. 

Vísað fyrirvaralaust úr forsætisráðuneytinu

Auðunn vill ekki tjá sig um málið en hann mun ítrekað hafa farið þess á leit við Katrínu að fá fund vegna málsins en allt kom fyrir ekki. Samstöðin greinir frá þessu og segir að Auðunn hafi verið sviptur aðgangskorti að Stjórnarráðshúsinu og verið vísað þaðan fyrirvaralaust.

Auðunn var þannig látinn bera ábyrgð á samskiptaleysi Bjarna og Katrínar, en tölvuskeyti þess efnis að til stæði að greiða atkvæði á þessa lund barst meðal annars honum auk fleiri viðtakendum; Auðunn var látinn bera ábyrgð á því að Bjarni og Katrín töluðu ekki saman um hina afdrifaríku hjásetu Íslands. Auðunn er nú aftur starfsmaður utanríkisráðuneytisins eftir að hafa haft fremur skamma viðveru í forsætisráðuneytinu. Og ætla það að reynast helstu afleiðingar málsins.

Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að Auðunn fari utan og taki við sendiherrastöðu á meginlandi Evrópu í haust.


Tengdar fréttir

Katrín ekki höfð með í ráðum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var ekki höfð með í ráðum þegar tekin var ákvörðun um að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Hún segir að afstaða þingflokks VG sé skýr.

Hjá­setan merki um fylgi­spekt við Banda­ríkin

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir átökin í Ísrael og Palestínu teygja anga sína víða. Ljóst sé að ástandið hafi áhrif á alþjóðasamskipti fjölmargra ríkja. Hún telur hjásetu Íslendinga hjá Sameinuðu þjóðunum merki um fylgispekt við Bandaríkin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×