Sport

Jólasmákökustríð hjá Anníe Mist og Katrínu Tönju

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru miklar keppniskonur og það á líka við um þegar þær mætast í eldshúsinu.
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru miklar keppniskonur og það á líka við um þegar þær mætast í eldshúsinu. Skjámynd/Youtube

Íslensku CrossFit drottningarnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru kannski ekki þekktar fyrir afrek sín í eldhúsinu en þær ákváðu engu að síður að bjóða upp á keppni í bakstri um þessi jól.

Anníe og Katrín tóku upp nýtt myndband fyrir Youtube síðuna sína Dóttir og þar kepptust þær við að búa til Lakkrístoppa og auðvitað fengu þær síðan kærastana sína til að smakka og dæma.

Jólin eru tími fyrir smákökubakstur og okkar konur vildu kanna það hvor væri öflugri í bakstrinum.

Íslensku CrossFit konurnar viðurkenndu samt strax í upphafi að þær væru ekki alveg á heimavelli í eldhúsinu.

„Okkur hefur alltaf langað til að gera matreiðsluþátt saman sem er svolítið broslegt af því að hvorug okkar ...,“ sagði Katrín Tanja en kláraði ekki setninguna og skipti snögglega um gír.

„Ég byrjaði að elda meira á síðasta ári en fyrir aðeins ári síðan þá gúglaði ég það hvernig ætti að sjóða hrísgrjón,“ sagði Katrín.

„Ég elda ekki mikið sjálf en ég hef hins vegar horft á marga matreiðsluþætti. Því miður held ég að ég hafi ekki lært mikið af þeim en í hvert skipti held ég samt að ég geti gert þetta betur“ sagði Anníe.

„Við gætum kennt ykkur að búa til smákökur en við gætum líka kennt ykkur hvernig ekki á að búa til smákökur,“ sagði Katrín í léttum tón.

Það var samt auðvitað mjög stutt í keppnisskapið enda erfitt að finna meiri keppnismanneskjur.

„Ég ætla að vinna þetta. Hvað eigum við að búa til? Ég mun standa mig vel,“ sagði Anníe og var fljót að loka á spjallið og vildi hefja keppnina sem fyrst.

„Annað hvort vinnur Anníe eða klúðrar hlutunum algjörlega fyrir sig,“ sagði Katrín glottandi.

Það má sjá jólakökustríðið hjá Anníe Mist og Katrínu Tönju hér fyrir neðan. Þar kemur líka í ljós hvor þeirra bakaði betri Lakkrístoppa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×