Erlent

Masterson kominn í fangelsi

Samúel Karl Ólason skrifar
Danny Masterson (47) hefur verið dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar.
Danny Masterson (47) hefur verið dæmdur til þrjátíu ára fangelsisvistar. AP

Leikarinn og nauðgarinn Danny Masterson hefur verið fluttur í almennt fangelsi í Kaliforníu, þar sem hann mun sitja inni í minnst tuttugu og fimm ár. Masterson mun afplána tvöfaldan nauðgunardóm sinn í North Kern fangelsinu í Kaliforníu.

Samhliða því að hann var fluttur í fangelsi birtu yfirvöld í Kaliforníu fyrstu fangamyndina af honum.

Masterson, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum vinsælu; That ´70 Show, var í september dæmdur fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður.

Árið 2020 stigu þrjár konur fram og sökuðu hann um nauðganir sem áttu að eiga sér stað árið 2001 og 2003. Hann var sakfelldur fyrir báðar nauðganirnar árið 2003 en ekki þá sem hann var sakaður um af fyrrverandi kærustu árið 2001.

Konurnar sögðu hann hafa byrlað þeim ólyfjan og nauðgað þeim. Masterson og konurnar voru í Vísindakirkjunni og spilaði hún stóra rullu í réttarhöldunum. Leikarinn var sakaður um að hafa notað stöðu sína innan kirkjunnar til að brjóta á konunum og komast hjá því að vera refsað.

Fyrst var réttað í málinu í fyrra en kviðdómendur komust ekki að niðurstöðu þá, svo halda þurfti réttarhöldin aftur.

Sjá einnig: Masterson dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun

Í kjölfarið á úrskurðinum sótti leikkonan Bijou Phillips um skilnað frá Masterson en þau höfðu verið gift í tólf ár og eiga saman eitt barn. Peter Lauzon, lögmaður Phillips, sagði þá að hún væri fyrst og fremst að gæta hagsmuna barns síns.

Frá því hann var dæmdur hefur Masterson setið í gæsluvarðhaldi í Los Angeles á meðan gengið var frá máli hans. Þar á meðal þurfti að finna allar byssur sem hann átti og skila þeim inn.

Masterson getur fyrst sótt um að vera sleppt úr fangelsi á reynslulausn eftir 25 ár. Lögmenn hans hafa þó sagt að þær ætli að áfrýja sakfellingu hans.


Tengdar fréttir

Kutcher stígur til hliðar eftir um­deilt með­mæla­bréf

Bandaríski leikarinn Ashton Kutcher hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður samtakanna Thorn sem vinna gegn kynferðisofbeldi og mansali. Eiginkona hans og leikkonan Mila Kunis stígur einnig úr sínu hlutverki í samtökunum.

Dómari ógildir réttarhöldin yfir Masterson

Dómari ógilti réttarhöld yfir leikaranum Danny Masterson í gær, þar sem kviðdómurinn gat ekki náð saman um niðurstöðu. Masterson var ákærður fyrir þrjár nauðganir og hefur notið stuðnings Vísindakirkjunnar í baráttu sinni gegn ásökununum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×