Innlent

Nýja for­seta­höllin sprettur upp

Jakob Bjarnar skrifar
Guðni byggir. Forsetahöll hans rís nú meðan menn bíða þess í offvæni að hann lýsi nánar fyrirætlunum sínum í komandi áramótaávarpi.
Guðni byggir. Forsetahöll hans rís nú meðan menn bíða þess í offvæni að hann lýsi nánar fyrirætlunum sínum í komandi áramótaávarpi. vísir/vilhelm/arnar

Guðni Th. Jóhannesson, forseti íslenska lýðveldisins, er að reisa höll undir sig og fjölskyldu sína og miðar byggingu hennar vel.

Ljóst er að um mikla glæsibyggingu er að ræða á einum besta stað landsins sem er nýtt einbýlishúsahverfi sem liggur á mótum Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Þannig er stutt í allar áttir fyrir Guðna að fara, hvort heldur er á Bessastaði eða á forsetaskrifstofuna við Sóleyjargötu. 

Forsetahöllin rís en ekki var unnið við húsið í dag þegar ljósmyndari Vísis var þar á ferð.vísir/arnar

Húsið stendur við götu sem fengið hefur nafnið Steinprýði, hús Guðna er númer 17 og stendur við enda götunar.

Guðni fékk eina stærstu lóðina við götuna og er hún ekkert smáræði. Lóðin við hliðina er til sölu og er sett á hana eina og sér 60 milljónir. Sú lóð er 1,275 m2, lóð Guðna er talsvert stærri eða 1.619 m2 þannig að hún er verðmætari sem þá því nemur. 

Hér getur að líta skipulag hverfisins. Númer 17 er endahús við Steinprýði.

Að því gefnu að Guðni hafi greitt sambærilegt verð fyrir sína lóð og sett er á númer 15 hefur hann greitt um það bil 76 milljónir króna fyrir lóðina. En þetta er áætlun.

Þó hús Guðna sé nánast í bakgarði norðurbæjar Hafnarfjarðar, í hrauninu þar, tilheyrir Steinprýði Garðabæ og það var einmitt á fundi bæjarráðs Garðabæjar í maí á þessu ári sem samþykkt var að veita Guðna leyfi til að byggja einbýlishús á reitnum.

Hér má sjá staðsetningu vegarins Steinprýði sem liggur alveg við Hafnarfjörðinn en tilheyrir þó Garðabæ.Loftmyndir

Það hvort Guðni gefur kost á sér til endurkjörs til forseta Íslands mun svo liggja fyrir í nýársávarpi hans eftir þrjá daga – fyrr ekki eins og fram kom í svari hans við fyrirspurn Vísis.

Húsið minnir eilítið á virki og er í burstabæjarstíl. Þarna má sjá svalir þar sem Guðni getur farið og veifað til fjöldans, ef svo ber undir.vísir/arnar

Húsið er á besta stað á mótum Hafnarfjarðar og Garðabæjar, stendur við Álftanesafleggjarann.vísir/arnar

Tengdar fréttir

Veltir framboði til forseta fyrir sér

Páll Pálsson eigandi Pálsson fasteignasölu íhugar forsetaframboð. Hann vonast til þess að Guðni Th. Jóhannesson tilkynni framboð í ávarpi sínu á Nýársdag því sjálfur hafði Páll áætlað framboð eftir fjögur ár.

„Guðni var búinn að panta bikarinn á Bessastaði“

Elín Jóna Þorsteinsdóttir hefur verið á meðal betri leikmanna Íslands á HM kvenna í handbolta en Ísland lýkur keppni í kvöld. Sigri liðið Kongó verður bikar með í farteskinu heim til Íslands, svokallaður Forsetabikar.

Guðni þögull sem gröfin fram á nýársdag

Forseti Íslands ætlar ekki að upplýsa um áform sín í embætti fyrr en í árlegu áramótaávarpi sínu. Þetta segir forsetinn í skriflegu svari til fréttastofu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×