Innlent

MAST í­hugar að kæra Arctic Sea Farm til ríkis­sak­sóknara

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
„Við erum að skoða það hvort við ætlum að kæra málið til ríkissaksóknara,“ segir Hrönn Jörundsdóttir forstjóri MAST.
„Við erum að skoða það hvort við ætlum að kæra málið til ríkissaksóknara,“ segir Hrönn Jörundsdóttir forstjóri MAST. Vísir/Einar

Hátt í þrjú hundruð frávik hafa orðið hjá fyrirtækjum í land- og sjóvkvíeldi hér á landi á síðustu þremur árum og þar af teljast ríflega sextíu alvarleg. Matvælastofnun íhugar að kæra fyrirtækið Arctic Sea Farm til ríkissaksóknara vegna tveggja alvarlegra mála.

Matvælastofnun hefur birt skýrslu um tvö alvarleg frávik hjá laxeldisstöð Arctic Sea Farm á Patreksfirði síðastliðið sumar. Fyrirtækið er í eigu Arctic Fish ehf. sem er að stærstum hluta í eigu norska fyrirtækisins MOWI sem fer með ríflega helmingshlut og Síldarvinnslunnar sem á 35 prósent. 

„Alvarlegu frávikin snúa annars vegar að ljósastýringu og hins vegar að því að það mynduðust göt á kvína,“ segir Hrönn Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar. 

Eitt stærsta atvik sinnar tegundar

Samkvæmt skýrslu MAST komu tvö göt á kvína sem í voru 75 þúsund fiskar, einhvern tíma á tímabilinu 8. - 20. ágúst síðastliðið sumar. Þá hafi ekkert neðansjávareftirlit verið með kvínni í 95 daga á síðasta ári. 

„Í þessu atviki er talið að 12-13 hundruð eldislaxar hafi sloppið út. Það sem var alvarlegt í þessu atviki er að þetta var kynþroska fiskur sem leitar upp í árnar. Það eru ekki mörg atvik í sjókvíaeldi af þessari stærðargráðu sem hafa gerst áður ,“ segir Hrönn.

Mikið var fjallað um slysasleppinguna í fjölmiðlum síðastliðið haust. 

MAST kærði málið til lögreglunnar á Vestfjörðum sem ákvað rétt fyrir jól að hætt rannsókn sinni. 

Landssamband veiðifélaga hyggst kæra þá ákvörðun. 

Matvælastofnun íhugar að kæra til ríkissaksóknara

Matvælastofnun íhugar að kæra málið til ríkissaksóknara og mun ákvörðun liggja fyrir á næstu vikum.

„Við erum að skoða það hvort við ætlum að kæra málið til ríkissaksóknara,“ segir Hrönn.

Fjölmörg frávik í landeldi og sjókví síðustu ár

Alls hafa komið upp fimm alvarleg frávik og átta frávik hjá Arctic Sea Farm frá árinu 2019. 

Í heild hafa komið upp 62 alvarleg frávik og 2010 frávik hjá fyrirtækjum í landeldi og sjókví frá árinu 2020. 

Hrönn segir mikilvægt að breyta lagaramma um greinina.

„Regluverkið og lagaramminn í kringum þessa grein eru ekki eins og þau ætti að vera. Það stendur til bóta og það liggja inni frumvörp til laga og ég vænti þess að í nýjum lögum hafi eftirlitsstofnanir eins og MAST frekari úrræði til að bregðast við svona atvikum,“ segir Hrönn.


Tengdar fréttir

Ís­lenski laxa­stofninn deyi út verði ekkert gert

Framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna segir íslenska laxastofninn deyja út haldi laxeldi áfram í opnum sjókvíum. Í gær var staðfest að eldislax hafi fundist í að minnsta kosti ellefu ám en þeir höfðu sloppið úr sjókví Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í síðasta mánuði. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×