Lífið

Ætlar ekki í eigin af­mælis­veislu því enginn frægur mætir

Jón Þór Stefánsson skrifar
Margir frægir voru tilkynntir sem gestir í veislunni, en svo virðist sem enginn þeirra muni mæta, ekki einu sinni sjálft afmælisbarnið, Robert F. Kennedy.
Margir frægir voru tilkynntir sem gestir í veislunni, en svo virðist sem enginn þeirra muni mæta, ekki einu sinni sjálft afmælisbarnið, Robert F. Kennedy. EPA

Bandaríski forsetaframbjóðandinn Robert F. Kennedy yngri mun ekki mæta í eigin afmælisveislu.

Um er að ræða pólitíska fjáröflunarhátíð sem verður haldinn þann 22. janúar í tilefni af sjötíu ára afmæli Kennedys. Veislan fer fram í borginni Indian Wells í Kaliforníuríki Bandaríkjanna.

Greint hafði verið frá fyrirhugaðri komu tónlistarkonunnar Dionne Warwick, Hollywood-leikarans Martin Sheen, ítalska söngvarans Andrea Bocelli og fyrrverandi hnefaleikappans Mike Tyson. Þau hafa þó öll gefið út að þau ætli ekki að mæta í veisluna og þá gerir Kennedy slíkt hið sama.

Warwick var fyrst að bregðast við fregnum um fyrirhugaða komu hennar. Hún sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að tilkynningar um slíkt væru „algjörlega fáránlegar“.

Martin Sheen, sem gerði garðinn frægan í kvikmyndinni Apocalypse Now og lék forseta Bandaríkjanna í sjónvarpsþáttunum West Wing, sló á svipaða strengi. „Ég styð ekki Robert F. Kennedy yngri, og ég ætla ekki að mæta í partýið hans.“

Hann hefur síðan bætt við að hann styðji Joe Biden, sitjandi Bandaríkjaforseta, í komandi forsetakosningum vestanhafs.

Líkt og áður segir hafa Bocelli og Tyson einnig tilkynnt að þeir ætli sér ekki að mæta.

Eins og nafn Roberts F. Kennedy gefur til kynna þá er hann innvinnklaður í Kennedy-fjölskylduna. 

Hann er sonur Roberts „Bobby“ Kennedy, forsetaframbjóðanda, sem var skotinn til bana árið 1968, og þá er hann frændi Johns F. Kennedy Bandaríkjaforseta sem var einnig skotinn til bana, fimm árum fyrr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×