Innlent

Fjöl­skyldu­faðir á Akur­eyri talinn með­limur Íslamska ríkisins

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn var búsettur á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni.
Maðurinn var búsettur á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni. Vísir/Tryggvi Páll

Þrír karlmenn voru handteknir í lögregluaðgerðum á Akureyri í morgun. Einn þeirra hefur verið fluttur til Grikklands ásamt eiginkonu sinni og sex börnum sem eru á aldrinum 6 mánaða til 16 ára. Sá er talinn vera meðlimur Íslamska ríkisins, ISIS.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá Ríkislögreglustjóra. Þar segir að í framhaldi af handtökunum hafi verið framkvæmd húsleit í tveimur húsum og lögreglan lagt hald á farsíma og peninga. Tveimur mannanna hafi svo verið sleppt úr haldi.

Aðgerðir lögreglu hafi staðið yfir síðan í nóvember í samstarfi við erlend lögregluyfirvöld, þar á meðal Europol, vegna upplýsinga um að fjölskyldufaðirinn sé meðlimur Íslamska ríkisins, ISIS. Að sögn Helenu Rósar Sturludóttur, upplýsingafulltrúa Ríkislögreglustjóra, er um fyrsta staðfesta tilvik þess að maður búsettur á Íslandi tengist líka ISIS. 

Árið 2016 var þó greint frá því að Íslending væri að finna í skjölum sem innihéldu upplýsingar um ISIS-liða.

Þá sagði Ríkislögreglustjóri að embættið byggi ekki yfir neinum upplýsingum um að Íslendingur tengdist samtökunum.

Mikilvægt hafi þótt að tryggja öryggi og velferð fjölskyldunnar í aðgerðinni í morgun og því hafi starfsmenn félagsþjónustu, barnaverndar og heilbrigðismenntað starfsfólk ásamt fjölda lögreglumanna verið á vettvangi.

Flugvél með fjölskylduna innanborðs hafi lent í Grikklandi síðdegis en fjölskyldan hafi komið hingað til lands í september og sótt um alþjóðlega vernd hér á landi en verið synjað á þeim forsendum að þau eru með alþjóðlega vernd í Grikklandi.

Aðgerð lögreglu hafi tekist vel og sé nú lokið en rannsókn málsins enn á viðkvæmu stigi og því ekki hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu.

Samtökin ISIS brutust fram á sjónarsviðið árið 2014 þegar þau náðu völdum á landsvæði sem tilheyrir Sýrlandi og Írak. Samtökin lýstu yfir stofnun Kalífadæmis á svæðinu sem kallaðist einfaldlega Íslamska ríkið. Síðan þá hefur máttur samtakanna dalað mikið og foryngjar þeirra verið drepnir í röðum. Samtökin eru þó enn virk og lýstu til að mynda yfir ábyrgð á hryðjuverkunum sem framin voru í Bagdad á dögunum.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×