Innlent

Gætum séð aukningu í svipuðum að­gerðum og á Akur­eyri

Bjarki Sigurðsson skrifar
Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði.
Margrét Valdimarsdóttir, dósent í afbrotafræði. Vísir/Arnar

Handtaka manns á Akureyri sem er tengdur ISIS-hryðjuverkasamtökunum er einsdæmi hér á landi. Afbrotafræðingur segir aðgerðum sem þessari geta fjölgað hér á landi á næstu árum með fjölgun flóttamanna. 

Í gær voru þrír karlmenn handteknir í aðgerðum lögreglunnar á Akureyri. Einn hinna handteknu var fluttur úr landi samdægurs ásamt eiginkonu sinni og sex börnum. Maðurinn er talinn tengjast hryðjuverkasamtökunum ISIS.

Flóttafólki muni fjölga

Þetta er í fyrsta sinn sem vitað er að maður búsettur hér á landi tengist ISIS-samtökunum. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir að aðgerðum svipuðum og þessari á Akureyri, gæti fjölgað á næstu árum.

„Ástæðan fyrir því að það er líklegra að flóttafólk tengist hryðjuverkasamtökum en fólk sem flytur hingað af öðrum ástæðum er að flóttafólk er að flýja stríðshrjáð lönd þar sem hryðjuverkasamtök og hryðjuverk eru algengari. Vopnuð átök ýta undir hryðjuverkastarfsemi. Það er margt sem bendir til þess að flóttafólki muni fjölga á næstu árum og þess vegna gætum við alveg verið að horfa fram á aukningu í svona aðgerðum. Að þetta sé eitthvað sem muni gerast á næstu árum,“ segir Margrét.

Flestir jákvæðir gagnvart flóttafólki

Hún segir að svona tilvik geti ýtt undir fordóma gagnvart flóttafólki.

„Það er þó mest fyrst um sinn, fyrst eftir að aðgerðirnar koma upp og fólki er brugðið. En ég held að Íslendingar séu jákvæðir gagnvart, eins og ég sagði, að taka á móti flóttafólki og vilja gera það vel. Líka jákvæðir gegn flóttafólki sem kemur frá Miðausturlöndum,“ segir Margrét.

Eðlilegt sé að vera með síu á hverjir fá hæli hér á landi.

„Íslendingar vilja taka á móti flóttafólki og vilja að gera sitt besta við að taka á móti fólki sem er að sækja um alþjóðlega vernd en það þarf að vera einhver sía. Og þá ímynda ég mér að flestir séu sammála um að við viljum ekki fólk sem tengist hryðjuverkasamtökum,“ segir Margrét.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×