Innlent

Flug­lita­kóðinn appel­sínu­gulur

Atli Ísleifsson skrifar
Fluglitakóði á Reykjanesi hefur verið hækkaður í appelsínugulan.
Fluglitakóði á Reykjanesi hefur verið hækkaður í appelsínugulan. Veðurstofan

Fluglitakóðinn fyrir Reykjanes hefur verið hækkaður og en hann nú appelsínugulur.

Þetta má sjá á vef Veðurstofunnar. Þegar kóðinn er appelsínugulur er sýnir eldstöð aukna virkni og er „vaxandi líkur á eldgosi eða, eldgos sé í gangi, þó með lítilli eða engri öskuframleiðslu.“

Í tilkynningu frá Veðurstofu sem barst snemma í morgun segir að skjálftavirknin hafi haldið áfram að færast suður og fleiri skjálftar hafi mælst undir miðri byggðinni í Grindavík.

Skjálftavirknin og þær breytingar sem sjást á GPS stöðvum eru sambærilegar við það sem sást í aðdraganda eldgossins 18. desember. Helsti munurinn nú og þá er sá að skjálftavirknin er talsvert sunnar.

Miðað við þróun skjálftavirkninnar er ekki hægt að útiloka þá sviðsmynd að kvika komi upp innan bæjarmarkanna í Grindavík.


Tengdar fréttir

Vaktin: Eldgos talið á leiðinni og Grindavík rýmd strax

Eldgos er talið yfirvofandi í grennd við Grindavík og hefur bærinn verið rýmdur. Samhæfingarmiðstöð hefur verið virkjuð. Virkni hefur færst til suðurs og er ekki er talið útilokað að það muni gjósa innan bæjarmarka. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×