Innlent

Ný sprunga hefur opnast rétt norðan bæjarins

Atli Ísleifsson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Sjá má hraun stíga upp aðeins fáeinum tugum metra frá húsum nyrst í bænum.
Sjá má hraun stíga upp aðeins fáeinum tugum metra frá húsum nyrst í bænum.

Ný sprunga hefur opnast rétt norðan byggðar í Grindavík. Sprungan opnaðist um klukkan 12:10, norðan götunnar Efrahóps.

Lögregla hefur gert fréttafólki og starfsmönnum við varnargarðana að rýma svæðið tafarlaust. Hraun stígur upp aðeins fáeinum tugum metra frá húsum.

Ný gossprunga opnaðist nærri Grindavík skömmu eftir hádegi.

Sjá má sprunguna í spilaranum að neðan. 

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur, ræddi við Erlu Björg Gunnarsdóttur í  beinni útsendingu í aukafréttatíma Stöðvar 2 þegar fyrstu fréttir bárust af nýju sprungunni. 

„Þetta er hræðilegt að sjá. Ég þekki þessi hús mjög vel, ég sé næstum í húsið mitt,“ segir Fannar þegar honum voru sýndar myndir af sprungunni sem nær nánast að efstu húsunum í nýjasta hverfi bæjarins, Hópshverfi.“

Fannar Jónsson, bæjarstóri Grindavíkur var upplýstur um nýju sprunguna í beinni útsendingu í aukafréttatíma Stöðvar 2.Vísir/Einar

„Þetta er hræðileg staða. Það blasir við að húsin virðast vera mjög nálægt.“

Sprungur af  völdum umbrotanna í morgun

Greint er frá því á vef Veðurstofunnar að nýja gossprungan sé sunnan við fyrstu sprunguna frá því í morgun. Nýja sprungan er rétt utan bæjarmarkanna.

Beinu rauðu strikin sýna sprungur. Annars vegar þá sem er að mestu norðan varnargarða en nær þó undir hann. Hins vegar aðra styttri sem er í einhverra tuga metra fjarlægð frá húsum í Grindavík.Veðurstofa Íslands

„Aflögunarmælingar benda eindregið til þess að sprungur innan bæjarmarkanna í Grindavík hafi gliðnað af völdum umbrotanna í morgun. Því má reikna með að fleiri sprungur hafi opnast og ef til vill nýjar myndast.“

Öll nýjustu tíðindi af eldgosinu má finna í vaktinni á Vísi.


Tengdar fréttir

Hraun runnið yfir Grindavíkurveg

Hraunrennslið úr eldgosinu sem hófst í morgun hefur náð yfir Grindavíkurveg. Þetta sést á vefmyndavélum.

„Þetta er bara alveg hrikaleg staða“

„Þetta er bara alveg hrikaleg staða. Mikið áfall,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra um yfirstandi eldgos sem hófst nálægt Grindavík í morgun. Hún segir hug sinn hjá íbúum Grindavíkur en biðlar til allra að halda ró sinni. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×