Innlent

Úr­lausnar­efni að sam­ræma væntingar á al­menna og opin­bera vinnu­markaði

Heimir Már Pétursson skrifar
Stjórnvöld hafa fundað með bæði fulltrúum stéttarfélaga á almenna og opinbera markaðnum. Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að samræma væntingar þeirra.
Stjórnvöld hafa fundað með bæði fulltrúum stéttarfélaga á almenna og opinbera markaðnum. Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að samræma væntingar þeirra. Stöð 2/Einar

Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld hafa verið að vinna úr þeim fundi sem þau áttu með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar á almenna markaðnum. Hún hafi eftir það átt fund með forystufólki félaga á opinbera markaðnum.

„Að sjálfsögðu hafa þau auðvitað sínar hugmyndir um aðkomu ríkisins. Þannig að við erum að vinna úr þessum tillögum öllum. Eigum von á því að funda á vettvangi ráðherra á komandi dögum,“ segir forsætisráðherra. Eftir það verði síðan fundað á ný með aðilum vinnumarkaðarins.

Þær aðgerðir sem stéttarfélög á almenna markaðnum óska eftir að stjórnvöld grípi til hafa verið metnar á um 25 milljarða króna.Stöð 2/Einar

Á almenna markaðnum hefur verið stefnt að því að ljúka kjarasamningum áður en janúar er liðinn og samningstími gildandi skammtímasamninga rennur út. Katrín segir góðan tón hafa verið í þeim sem sitji við samningaborðið hingað til.

„Og það var mjög góður fundurinn sem við áttum með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar. Eins voru þetta góðir fundir sem við áttum með aðilum á opinbera markaðnum. Þannig að ég hef verið bjartsýn hingað til og vona svo sannarlega að þetta geti gengið vel,“ segir Katrín.

Heldur þú að hægt sé að sameina væntingar hins opinbera markaðar og almenna markaðarins?

Klippa: Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði

„Það er ákveðið úrlausnarefni bæði hvað varðar aðkomu stjórnvalda, að leggja fram aðgerðir sem þjóna öllum, á opinberum og almennum markaði, en síðan er auðvitað ljóst að við samningaborðið hafa væntingar verið ólíkar. Það hafa átt sér stað samtöl um þau málefni líka,“ segir Katrín Jakobsdóttir.


Tengdar fréttir

Gæti vantað „einhverjar vörur í hillur“ Haga vegna af­stöðu gegn verð­hækkunum

Forstjóri Haga sagði að í verslunum samstæðunnar verði tekin afgerandi afstaða gegn verðhækkunum sem teljist umfram það sem innistæða væri fyrir eða ógni samningsmarkmiðum komandi kjarasamninga. „Það er mögulegt að það muni vanta einhverjar vörur í hillur sem fólk er vant að geta gengið að; það væri einfaldlega vegna þess að okkar mati hafa þær hækkað of mikið.“

Alvarlegar afleiðingar standi aðilar ekki við sitt

Formaður VR segir að samningaviðræður breiðfylkingar ASÍ við SA á því stigi nú að farið sé að ræða einstök atriði. Hann segist hafa trú á viðræðunum þrátt fyrir fyrri reynslu, allir aðilar þurfi að standa við sitt.

Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu

Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×