Innlent

Erfiðast að sjá eigið hús ekki brunnið

Oddur Ævar Gunnarsson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Íbúafundurinn í Laugardalshöll er mjög fjölmennur.
Íbúafundurinn í Laugardalshöll er mjög fjölmennur. Vísir/Sigurjón

Íbúi Grindavíkur segir að erfiðasti dagurinn frá því að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember síðastliðinn hafa verið þegar hún vaknaði einn morguninn í vikunni og sá að húsið hennar var ekki brunnið.

Þetta kom fram á íbúafundi Grindavíkur í Laugardalshöll nú síðdegis. Bryndís Guðlaugsdóttir, Grindvíkingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi, var meðal þeirra sem ávörpuðu ráðamenn á fundinum. Hún uppskar standandi lófatak fyrir ummælin.

Klippa: Bryndís Gunnlaugsdóttir spyr spurningar á íbúafundi Grindavíkur

„Erfiðasti dagurinn frá 10. nóvember var að vakna um morguninn og sjá að húsið mitt væri ekki brunnið. Ef það hefði brunnið þá hefði ég fengið fjárhagslegt sjálfstæði og vissu, og þessi snara sem var utan um hálsinn minn væri farin.“

Bryndís sagðist einhvern daginn vilja fara aftur heim til Grindavíkur og hjálpa til við að byggja bæinn aftur upp þegar hann verður öruggur. Um væri að ræða spurningu um ár en ekki mánuði.

Plástrar á lífshættuleg sár

„Það sem ég er mest hrædd við að er að þið ætlið ekki að skera fólk úr þessari snöru og íbúar neyðist til þess að fara heim, vegna þess að af fjárhagslegum ástæðum séu þau föst í Grindavík.“

Bryndís sagði að fólk verði að vilja fara heim. Til þess að geta farið heim með baráttuhug yrði það fyrst að setja á sig súrefnisgrímuna.

„Allt sem er búið að gera núna eru plástrar á lífshættuleg sár. Bráðabirgðahúsnæði er ekki heimili. Ég spyr: Hversu lengi þurfum við að vera í þessari óvissu þar til þið byrjið að hugsa um að gera eins og gert er á snjóflóðasvæði, eða þar sem eru aurskriður, að kaupa okkur út svo við fáum sjálfstæði okkar aftur, sjálfsákvörðunarrétt og öryggi?“

Stjórnvöld geti ekki reitt fram töfralausn

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, svaraði Bryndísi á fundinum. Hún sagðist skilja stöðu Grindvíkinga, sem ekki geta séð fyrir sér að byggja heimili í bænum sínum.

Katrín sagði að stjórnvöld geti ekki reitt fram töfralausn. Það sé hinsvegar unnið að því hörðum höndum að finna lausnir.

Þær muni kalla á sértækar aðgerðir og lagabreytingar. Mikilvægt sé að vanda til verka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×