Innlent

Heildarfasteignamat í Grinda­vík um 107 milljarðar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú metið heildar virði fasteigna í Grindavík.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú metið heildar virði fasteigna í Grindavík. Vísir

Hávær krafa er um  að ríkissjóður bæti Grindvíkingum tjón sem íbúar í bænum hafa orðið fyrir vegna jarðhræringanna á Reykjanesi. Ýmsar tölur hafa verið nefndar um hvert verðmæti þeirra sé. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur nú tekið saman heildarfasteignamat bæjarins sem nemur um 107 milljörðum króna.

Á fjölmennum íbúafundi Grindvíkinga með stjórnvöldum í gær kom fram hávær krafa um að stjórnvöld borgi íbúa út vegna stöðunnar sem komin er upp í bænum. Nokkrar tölur um verðmæti fasteigna komu fram á fundinum.

Heildarvirði fasteigna 

Fréttastofa óskaði í morgun eftir svari við hvert heildar fasteignamat allra íbúðareigna í Grindavík sé í raun hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. 

Í svari Húsnæðis-og mannvirkjastofnunar kemur eftirfarandi fram:

Heildar fasteignamat allra íbúðareigna í Grindavík er 73,1 milljarður króna.

Heildar brunabótamat allra íbúðareigna í Grindavík er (78,5 milljarðar.

Alls eru tólfhundruð og ein íbúðareign í Grindavík. 

Heildar fasteignamat allra atvinnueigna í Grindavík er samkvæmt matinu 21,4 milljarðar. 

Heildar brunabótamat allra atvinnueigna í Grindavík er 42,1 milljarðar.

Atvinnueignir eru alls 227.

Húsnæðis-og mannvirkjastofnun metur einnig aðrar eignir í bænum þannig nemur fasteignamat sumarhúsa í Grindavík 4,7 milljörðum króna, stofnana og samkomustaða 3,4 milljörðum og við bætast jarðir, óbyggðar lóðir og lönd. Heildarfasteignamat Grindavíkur er  því 107 milljarða en brunabótamatið 142 milljarðar króna.

Það ber að nefna að þær eignir sem getið er í frétt á vef Grindavíkurbæjar hafa nú þegar fengið lækkun á fasteignamati og hafa ekkert brunabótamat að öllu eða hluta, þar sem NTÍ hefur metið sem altjón á einum eða fleiri matshlutum og eru því ekki inni í samtölunni hér að ofan. Þær eru þó svo fáar að þær hafa ekki teljandi áhrif á heildarsummurnar.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Gefa sér ekki tíma til að óttast

Pípulagningameistari sem fer fyrir vinnu í Grindavíkurbæ segir að unnið sé í kappi við tímann við að koma vatni og rafmagni á bæinn. Vinnumenn gefi sér ekki tíma til þess að óttast um eigið öryggi innan bæjarins en fari auðvitað varlega.

Fyrsta stig verðmætabjörgunar í gangi og næstu til skoðunar

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lýsir aðgerðum til að tryggja hita á húsum í Grindavíkurbæ sem stórri verðmætabjörgun. Áfram verður unnið að því í dag auk þess sem sérfræðingahópur á vegum almannavarna er að kortleggja sprungur og hættur í bænum.

Erfiðast að sjá eigið hús ekki brunnið

Íbúi Grindavíkur segir að erfiðasti dagurinn frá því að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember síðastliðinn hafa verið þegar hún vaknaði einn morguninn í vikunni og sá að húsið hennar var ekki brunnið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×