Innlent

Segja SA hafna sinni nálgun um þjóðar­sátt

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er ein þeirra sem ritar nafn sitt undir tilkynninguna.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er ein þeirra sem ritar nafn sitt undir tilkynninguna. Vísir/Vilhelm

Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði segir Samtök atvinnulífsins hafna nálgun fylkingarinnar um þjóðarsátt. Hún hvetur SA til að rýna betur tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá breiðfylkingunni. Þar segir að eftir farsælar viðræður í upphafi hafi farið fram tímafrek og á köflum mjög tæknileg umræða milli samningsaðila um reiknilíkön.

„Í þeim umræðum hafa SA smátt og smátt fjarlægt sig frá upphaflegum, jákvæðum viðbrögðum sínum. SA hafa fengið það út að tillögur Breiðfylkingarinnar séu of kostnaðarsamar og í staðinn sett fram tillögur sem eru langt neðan við þær hóflegu hækkanir sem Breiðfylkingin lagði til í upphafi viðræðna.“

Hvorki gengið né rekið í á aðra viku

Segir fylkingin að hún hafi andmælt nálgun SA með gögnum og rökum í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Hvorki hafi gengið né rekið í viðræðunum vegna andstöðu SA við launatillögur breiðfylkingarinnar í á aðra viku.

„Breiðfylkingin vill hvetja SA til að snúa af þessari braut og taka skref fram á við, ekki til baka. Mikil ábyrgð hvílir á samningsaðilum að ganga í takt að settu marki. Það markmið er heildstæð kjarasamningagerð, studd af löngu tímabærum umbótum á tilfærslukerfum hins opinbera, þar sem hóflegar krónutöluhækkanir verði forsenda lækkunar á verðbólgu og vöxtum.“

Segist fylkingin hafa fyrir sitt leyti brugiðst við kalli samfélagsins um ábyrga kjarasamningsgerð. Býst hún við því sama af öðrum.

„Breiðfylkingin hvetur SA til að rýna betur hófstilltar tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. Sé það gert þá er leiðin til farsællar kjarasamningagerðar greið.“

Tilkynningin í heild sinni:

Samtök atvinnulífsins hafna nálgun Breiðfylkingar um Þjóðarsátt

Breiðfylking stærstu stéttarfélaga og landssambanda á almennum vinnumarkaði hóf viðræður við Samtök atvinnulífsins þann 28. desember. Á fundi þann dag kynnti Breiðfylkingin tillögur sínar um tilteknar launahækkanir í þriggja ára kjarasamningi, með ítarlegum útfærslum og rökstuðningi. Þær tillögur voru mjög hófsamar og byggðar á þekktri fyrirmynd, Lífskjarasamningunum frá 2019.

Heildarkostnaðarmat tillagna Breiðfylkingarinnar er vel innan þeirra marka sem Seðlabankinn gerir ráð fyrir í Þjóðhagsspá sinni til næstu þriggja ára. Nánast er einsdæmi að verkalýðshreyfingin hafi í upphafi kjaraviðræðna lagt fram tillögur sem eru innan þeirra marka.

Á grunni þessara tillagna skapaðist mikil jákvæðni sem báðir samningsaðilar tjáðu í fjölmiðlum. Aðilar gáfu út sameiginlega yfirlýsingu, í kjölfar fundar þar sem Breiðfylkingin kynnti tillögur sínar, þar sem þeir hvöttu til aðhalds í gjaldskrár- og verðhækkunum. Jafnframt var varað við launaskriði, en það er einsdæmi að verkalýðshreyfingin á Íslandi taki undir með atvinnurekendum í gagnrýni á launaskrið.

Síðan þá hefur farið fram tímafrek og á köflum mjög tæknileg umræða milli samningsaðila um reiknilíkön. Í þeim umræðum hafa SA smátt og smátt fjarlægt sig frá upphaflegum, jákvæðum viðbrögðum sínum. SA hafa fengið það út að tillögur Breiðfylkingarinnar séu of kostnaðarsamar og í staðinn sett fram tillögur sem eru langt neðan við þær hóflegu hækkanir sem Breiðfylkingin lagði til í upphafi viðræðna. Breiðfylkingin hefur andmælt nálgun SA með gögnum og rökum í samræmi við viðurkenndar aðferðir. Í á aðra viku hefur hvorki gengið né rekið í viðræðunum vegna andstöðu SA við launatillögur Breiðfylkingarinnar.

Breiðfylkingin vill hvetja SA til að snúa af þessari braut og taka skref fram á við, ekki til baka. Mikil ábyrgð hvílir á samningsaðilum að ganga í takt að settu marki. Það markmið er heildstæð kjarasamningagerð, studd af löngu tímabærum umbótum á tilfærslukerfum hins opinbera, þar sem hóflegar krónutöluhækkanir verði forsenda lækkunar á verðbólgu og vöxtum.

Breiðfylkingin hefur fyrir sitt leyti brugðist við kalli samfélagsins um ábyrga kjarasamningagerð og býst við því sama af öðrum. Breiðfylkingin hvetur SA til að rýna betur hófstilltar tillögur hennar og endurgjalda auðsýndan samningsvilja. Sé það gert þá er leiðin til farsællar kjarasamningagerðar greið.

F.h. Breiðfylkingarinnar

Eiður Stefánsson, formaður samninganefndar Landssambands íslenzkra verzlunarmanna

Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar – sambands iðnfélaga

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×