Körfubolti

Körfu­bolta­kvöld: Sara Rún er komin heim en hver á að detta út?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir í leik með íslenska landsliðinu þar sem hún hefur farið á kostum undanfarin ár.
Sara Rún Hinriksdóttir í leik með íslenska landsliðinu þar sem hún hefur farið á kostum undanfarin ár. Vísir/Bára

Íslenska landsliðskonan og körfuboltakona ársins, Sara Rún Hinriksdóttir, hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands og það sem meira er að hún ætlar að spila aftur með uppeldisfélagi sínu í Keflavík.

Subway Körfuboltakvöld kvenna ræddi endurkomu Söru en fréttir af henni komu á sama kvöldi og Keflavíkurkonur spiluðu stórkostlega í glæsilegum sigri á Grindavík.

Sara hefur verið besta körfuboltakona landsins undanfarin ár og hefur spilað lengi sem atvinnumaður. Hún hefur einnig verið hvað eftir annað stigahæst hjá íslenska landsliðinu í leikjum þess. Frábær leikmaður sem styrkir öll lið.

Það efast því enginn um hæfileika og getu hennar en í Körfuboltakvöldinu í gær var þetta meira spurning um það hvaða leikmaður Keflavíkurliðsins muni missa sæti sitt í byrjunarliðinu.

„Tölum um það hvernig hún passar inn í þetta Keflavíkurlið. Þær voru stórkostlegar í kvöld og við getum ekkert skautað fram hjá því. Hverja ætlar þú að taka út úr þessu byrjunarliði,“ spurði Hörður Unnsteinsson, umsjónarmaður Körfuboltakvölds kvenna.

„Ég held að þetta snúist ekkert um þetta byrjunarlið,“ sagði Ingibjörg Jakobsdóttir, sérfræðingur þáttarins, en hún komst ekki lengra því Hörður heimtaði svör.

„Ég ætla að fara yfir byrjunarliðið. Þetta eru Elisa Pinzan, Daniela Wallen, Thelma Dís Ágústsdóttir, Anna Ingunn Svansdóttir og Birna Benónýsdóttir. Þetta er besta byrjunarliðið í deildinni og ég held að við getum öll verið sammála því,“ sagði Hörður.

„Og besta sjötta manninn í Emelíu (Ósk Gunnarsdóttur). Hún skoraði núll stig í leiknum í kvöld en var samt frábær,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, sérfræðingur þáttarins.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá finnst mér Anna Ingunn alveg frábær leikmaður sem er búin að vaxa ótrúlega mikið,“ sagði Ingibjörg en komst ekki lengra.

„Af hverju eru þið að horfa svona á mig,“ sagði Ingibjörg.

„Þetta er vesen,“ skaut Hörður inn í.

„Ég er að reyna að svara þessu veseni,“ sagði Ingibjörg.

Hér fyrir neðan má sjá þau reyna að komast að því hvaða leikmaður Keflavíkurliðsins missir sæti í byrjunarliðinu og hvaða áhrif koma Söru Rúnar hefur. Það er ljós að hún tekur mikið til sín og það kallar á það að aðrir leikmenn þurfa eitthvað að stíga til baka.

Klippa: Körfuboltakvöld: Heimkoma Söru Rúnar til Keflavíkur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×