Lífið

Theo­dóra Mjöll og Þór opin­bera kynið

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Theodóra og Þór eiga von á sínu fyrsta barni saman í sumar.
Theodóra og Þór eiga von á sínu fyrsta barni saman í sumar. Theodóra

Theodóra Mjöll Skúladóttir, hárgreiðslukona og vöruhönnuður, og Þór Steinar Ólafs knattspyrnuþjálfari eiga von á dreng. Parið greindi frá gleðitíðindunum í í hringrásarfærslu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.

Er þetta fyrsta barn þeirra saman en fyrir á Theodóra einn dreng.

„Bætist í strákahópinn,“ skrifaði Theodóra við færsluna.

Fjölskyldan afhjúpaði kyn barnsins með því að sprengja svokallaða confetti sprengju. Theodóra

Parið opinberaði samband sitt um áramótin og sömuleiðis óléttuna. 

„Þakklát fyrir ævintýri ársins og bíðum spennt eftir óvæntum sumarglaðningi,“ skrifaði Theodóra og deildi myndum af parinu. Á seinni myndinni má sjá glitta í fína óléttukúlu.

Theodóra hefur starfað sem hárgreiðslukona í rúma tvo áratugi. Árið 2021 stofnaði hún svo sitt eigið hárvörumerki sem ber heitið THEA og kom innblásturinn frá ferli hennar í hárgreiðslunni.

Samhliða hárgreiðslustarfinu hefur hún gefið út þrjár bækur um hár og hárumhirðu, og aðrar fimm í samstarfi við Disney-samsteypuna.


Tengdar fréttir

Theodóra Mjöll fann ástina og er ólétt

Theodóra Mjöll Skúladóttir, hárgreiðslukona og vöruhönnuður, hefur fundið ástina í örmum Þórs Steinars Ólafs knattspyrnuþjálfara. Parið á auk þess von á sínu fyrsta barni saman á sumarmánuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×