Innlent

Segir al­manna­varnir fara of­fari og opna eigi Grinda­vík á ný

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Pípulagningamenn og aðrir viðbragðsaðilar hafi verið í Grindavík undanfarna daga við að yfirfara hús. Þá var Bláa lónið opnað í gær. Hins vegar er bærinn enn formlega lokaður.
Pípulagningamenn og aðrir viðbragðsaðilar hafi verið í Grindavík undanfarna daga við að yfirfara hús. Þá var Bláa lónið opnað í gær. Hins vegar er bærinn enn formlega lokaður. Vísir/Björn Steinbekk

Stefán Kristjánsson, eigandi fiskvinnslunnar Einhamar Seafood, segir aðgerðastjórn almannavarna fara offari í lokunum í Grindavík og að opna eigi bæinn á ný.

Stefán skrifar Facebook-færslu í dag um lokanir í Grindavík.

Hann segir þar að Grindvíkingar séu vanir náttúruöflunum og hættum og kunni að varast þær. Girða þurfi að hættuleg sprungusvæði og hleypa íbúum Grindavíkur aftur heim til að athuga með sín hús og ná í sínar búslóðir ef þeir vilja.

„Heilu hverfin í Grindavík eru meira og minna hættulítil eða hættulaus, nánast er hægt að keyra allar götur, almenn skynsemi, lífsreynsla og varkárni er það eina sem þarf,“ skrifar hann í færsluni.

Alið sé á ótta með fréttaflutningi

Fyrirtæki hafi opnað sinn rekstur og keypt inn hráefni sem séu nú ónýt af því ekki mátti bjarga vörunum. Fiskvinnslur og ferskfiskvinnslur hafi hafið starfsemi sína en nú liggi vörur upp á tugi tonna undir skemmdum. 

„Þetta er allt lokað enn þann dag í dag,“ skrifar Stefán.

Fréttamenn og aðrir valsi um svæðin og hnjóta um grjót eða stígi í holur og skrifaðar séu dramafréttir sem séu ekki lýsandi fyrir ástand Grindavíkur en valda ugg og kvíða. 

Bærinn sé víða skemmdur og mörg hús sprungin ónýt en langstærsti hluti fasteigna sé óskemmdur og íbúðarhæfur þegar lagnir séu komnar í lag.

„Það sagði mér björgunarsveitarmaður fyrir vestan að ef í dag myndi falla snjóflóð myndi enginn bjargast. Tíminn sem Almannavarnir tæki til að meta aðstæður og að koma með hættumat ylli því,“ skrifar Stefán í færslunni og bætir við að lokum að almannavarnir og aðgerðastjórn fari offari í lokunum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×