Erlent

Vinna að breiðu einskis­manns­landi við landa­mæri Gasa

Samúel Karl Ólason skrifar
Ísraelskir hermenn virða fyrir sér hús á Gasaströndinni. Hermenn hafa birt myndbönd af sér jafna hús við jörðu á undanförnum vikum.
Ísraelskir hermenn virða fyrir sér hús á Gasaströndinni. Hermenn hafa birt myndbönd af sér jafna hús við jörðu á undanförnum vikum. AP/Maya Alleruzzo

Ísraelskir hermenn hafa frá því í nóvember unnið að því að skapa eins kílómetra breitt einskismannsland við landamæri Gasastrandarinnar. Hús hafa verið jöfnuð við jörðu með sprengjum og jarðýtum, fyllt er upp í göng Hamas-samtakanna og akrar reittir upp.

Jörðin hefur svo verið flött með jarðvinnsluvélum.

Einn hermaður sem kom að þessari vinnu við norðanverð landamæri Gasastrandarinnar segir í samtali við Wall Street Journal að um mestu hafi verið um ræktunarland að ræða. Nú sé það öryggissvæði og „algjört einskismannsland“.

Markmið Ísraela er að auka öryggi á svæðinu og sannfæra íbúa bæja og annarra samfélaga nærri landamærunum að öruggt sé að snúa aftur. Ísraelskir hermenn sem verja landamærin eiga að geta séð og skotið á alla sem nálgast um fjörutíu kílómetra langa girðinguna sem markar þau.

WSJ segir ráðamenn í Bandaríkjunum pirraða yfir þessum ætlunum Ísraela og eru sagðir hafa lýst yfir andstöðu sinni snemma eftir að stríðið á Gasaströndinni hófst í október. Meðal ástæðna sem þeir ku hafa nefnt er að einskismannslandið auki á ótta Palestínumanna um að Ísraelar ætli sér að leggja undir sig allt svæðið eða hluta þess og að það muni gera erfiðara að sannfæra ráðamenn Arabaríkja um að taka þátt í endurbyggingu Gasastrandarinnar.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti yfir andstöðu sinni í gær. Það var eftir að Ísraelar tilkynntu að hermenn sem voru að koma sprengjum fyrir í húsum á umræddu svæði, féllu þegar Hamas-liðar skutu sprengju að þeim.

Sprengjurnar sem ísraelsku hermennirnir höfðu komið fyrir sprungu og húsin hrundu yfir nítján hermenn. Tveir til viðbótar féllu um borð í skriðdreka sem varð fyrir eldflaug frá Hamas-liðum.

Tilvist þessara öryggissvæðis var ekki staðfest af yfirvöldum í Ísrael fyrr en í gær, þó ætlunin hafi verið nefnd af nokkrum embættismönnum þar í landi á undanförnum vikum, samkvæmt frétt Washington Post.

Talsmenn ísraelska hersins hafa ekki viljað veita frekari upplýsingar um verkefnið en WP segir að samkvæmt ísraelskum fjölmiðlum hafi um 2.850 byggingar staðið á svæðinu sem nú sé skilgreint semeinskismannsland og þegar sé búið að jafna 1.100 þeirra við jörðu.


Tengdar fréttir

Ruddust inn í ísraelska þingið meðan árásir á Gasa héldu áfram

Aðstandendur gísla í haldi Hamas ruddust inn í ísraelska þingið til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda. Þrýstingur eykst á Netanjahú innan- sem utanlands. Utanríkismálastjóri ESB segir að núverandi leið Ísraela til að útrýma Hamas muni ekki virka og það þurfi að koma á friði. Nú þegar hafi um 25 þúsund manns fallið á Gasa.

Evrópu­ráð­herrar funda með utan­ríkis­ráð­herrum Ísrael og Palestínu

Evrópskir utanríkisráðherrar funda í dag með utanríkisráðherrum Ísrael og Palestínu. Fundað verður með þeim í sitthvoru lagi. Ræða á við þá á um möguleika á friði í Ísrael og Palestínu og hvernig megi koma honum á eftir að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hafnaði hugmyndum um tveggja ríkja lausn.

Ein starfhæf fæðingardeild á Gasa

Sameinuðu þjóðirnar ítreka ákall um vopnahlé á Gaza. Einungis ein fæðingardeild er starfhæf á svæðinu og starfsfólk segir ástandið grafalvarlegt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×