Innlent

Grind­víkingar komist vonandi sem fyrst heim að sækja verð­mæti

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Víðir segir veður hafa sett strik í reikningin en að vinna haldi áfram.
Víðir segir veður hafa sett strik í reikningin en að vinna haldi áfram. Stöð 2

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir unnið að því að gefa Grindvíkingum búsettum vestan Víkurbrautarinnar kost á því að komast heim til sín sem fyrst að sækja verðmæti.

Verið er að fylla í sprungun og meta hættu þeirra með hjálp jarðsjáa en að vinnan hafi tafist vegna óveðurs undanfarna daga. Víðir segist vilja nýta helgina í þá vinnu og að áætlun um aðgerðir vestanmegin við Víkurbrautina verði kynnt á morgun.

Austurhluti bæjarins erfiðara verkefni

Svæðið austan við Víkurbraut er töluvert meira sprungið og því mun taka lengri tíma að koma því í það lag að hægt sé að hleypa íbúum þess í húsin sín en að áætlun fyrir austurhluta bæjarins sé í bígerð.

„Hættan vegna jarðfalls, opnun nýrra sprungna er ennþá metin í hæsta flokki. Það sem við erum mest búin að vera að vinna að undanfarna daga er að fylla í þær sprungur og skanna þær með jarðsjám. Og reyna að leggja mat á það hvaða svæði svæði séu öruggari en önnur og þannig undirbúa það að leyfa Grindvíkingum að koma heim og vitja eigna sinna,“ segir Víðir í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Veður setur strik í reikninginn

Hann segir veðrið ekki hafa verið með sér í liði síðustu daga og að spárnar líti heldur ekki vel út um helgina en að vonandi verði hægt að nýta helgina vel.

„Það er spáð talsverðum vindi og úrkomu þannig það verður aðeins að koma inn í þetta líka hvort þetta sé raunverulega framkvæmanlegt en við sjáum það betur á morgun,“ segir Víðir.

Víðir segist skilja vel að fólk vilji ólmt komast heim til sín. Rafmagns- og hitaleysi í bænum valdi fólki áhyggjum ásamt því að Grindvíkingar vilja koma búslóð sinni fyrir í nýjum heimilum sínum utan bæjarins.

„Vonandi náum við að koma öllum þeim sem búa vestan Víkurbrautarinnar heim á stuttum tíma og það þýðir það að hver og einn fær kannski fjóra klukkutíma heima hjá sér,“ bætir Víðir við.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×