Lífið

Handboltapar á von á barni

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Sandra og Daníel eru búsett í Þýskalandi.
Sandra og Daníel eru búsett í Þýskalandi. Sandra Erlingsdóttir

Handboltaparið Sandra Erlingsdóttir og Daní­el Þór Inga­son eiga von á sínu fyrsta barni sam­an í lok sumars. Parið deildi gleðifréttunum í sameiginlegri færslu á Instagram. 

„Ágúst '24,“ skrifar parið og deilir skemmtilegri mynd. Þar má sjá mynd af samfellum með treyj­unúmerunum sem þau spila í ásamt sónarmynd.

Sandra og Daníel eru búsett í Þýskalandi þar sem þau eru bæði atvinnumenn í handbolta. 

Sandra leikur með þýska úrvalsdeildarliðinu Metz­ingen og er ein fremsta hand­bolta­kona Íslands og spilar lykilhlutverk í íslenska landsliðinu. Þá var hún valin handboltakona ársins 2022. 

Daníel leikur með HBW Balingen-Weilstetten. 

Daníel hefur verið í atvinnumennsku síðan 2019 en þá yfirgaf hann Hauka og gekk til liðs við Ribe-Esbjerg í Danmörku. Alls hefur hann leikið 39 landsleiki með A-landsliði karla í handbolta og skorað í þeim 11 mörk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×