Viðskipti erlent

Ryanair til í að kaupa afpantaðar Boeing þotur

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, er til í nýjar þotur frá Boeing.
Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, er til í nýjar þotur frá Boeing. EPA-EFE/OLIVIER HOSLET

Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair segist vera reiðubúið til þess að kaupa Boeing farþegaþotur af gerðinni Max 10 sem afpantaðar hafa verið af bandarískum flugfélögum, á réttu verði.

Reuters greinir frá en tilefnið eru fréttir af því að bandaríska flugfélagið United Airlines hyggist hætta við kaup á 277 Max 10 vélum. Vélar af gerðinni Max 9 frá Boeing hafa verið kyrrsettar í Bandaríkjunum eftir að dyr losnuðu á vél Alaska Airlines.

Í kjölfarið við skoðun á vélunum hafa fundist skrúfboltar sem herða hefði þurft betur. Þetta hefur fundist í vélum Alaska Airlines og United Airlines.

„Við höfum tjáð þeim að ef sum af þessum bandarísku flugfélögum vilja ekki Max 10 vélarnar, að þá muni Ryanair hirða þessar vélar,“ hefur Reuters eftir Michael O'Leary, forstjóra Ryanair.

Hann segir að ný vél Boeing verði byltingarkennd fyrir flugiðnaðinn. Á sama tíma tekur forstjórinn fram að Boeing þurfi að fara yfir gæðamál innanhúss.

Áður hefur Neil Sorahan, yfirmaður fjármálasviðs hjá Ryanair, sagt að félagið sé tilbúið til að kaupa vélarnar, á réttu verði. Félagið vonast til að hinar nýju vélar verði samþykktar af flugmálayfirvöldum fyrir lok ársins og geti hafið sig til flugs í byrjun næsta árs.

Ryanair er það flugfélag sem flýgur flestum farþegum í Evrópu. Félagið hefur þegar pantað 150 vélar af gerð Max 10, með möguleikanum á að panta 150 til viðbótar. Félagið á þegar 136 farþegaþotur af gerðinni Boeing Max 8 og 409 eldri vélar úr smiðju Boeing.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×