Innlent

Hærri líkur á slysum hjá ógeldum fressum

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Snæfríður Aþena, dýrahjúkrunarfræðingur á dýraspítalanum í Víðidal annast kisur og önnur dýr á spítalanum af mikilli alúð.
Snæfríður Aþena, dýrahjúkrunarfræðingur á dýraspítalanum í Víðidal annast kisur og önnur dýr á spítalanum af mikilli alúð. Vísir/Einar

Geldingar-og ófrjósemisaðgerðir katta hafa ýmsa heilsufarslega kosti, aðra en að sporna gegn offjölgun. Dýraspítalinn í Víðidal framlengdi tilboðsdaga á slíkum aðgerðum vegna gífurlegrar eftirspurnar. 

Vegna mikils fjölda heimilislausra katta í athvörfum landsins ákváðu forsvarsmenn Dýraspítalans í Víðidal að bjóða geldingar-og ófrjósemisaðgerðir á 30 prósent afslætti. 

Upphaflega áttu tilboðsdagarnir að standa yfir í tvo daga en vegna gífurlegrar eftirspurnar var ákveðið að framlengja tilboðið út janúar. 

Í fréttatíma Stöðvar 2 var fylgst með Nínu í ófrjósemisaðgerð. Eftir góðan undirbúning tók aðgerðin sjálf skamma stund, aðeins um fimm mínútur.

„Allt gekk vel, hún fer heim með smá verkjalyf. Svo gengur vonandi allt vel áfram og við þurfum ekki að sjá hana aftur fyrr en í bólusetningum,“ segir Snæfríður Aþena Stefánsdóttir dýrahjúkrunarfræðingur.

Aðgerðin sjálf tekur skamma stund, aðeins um fimm til tíu mínútur. Vísir/Einar

Fyrir utan það markmið að sporna gegn offjölgun katta hafa aðgerðir sem þessar ýmsa heilsufarslega kosti. Hjá læðum er aukin hætta á legbólgu og júguræxlum séu þær ekki teknar úr sambandi.

„Og með strákana, ef þeir eru ekki geldir eru hærri líkur á að verði fyrir slysi.”

Þeir halda að þeir séu óstöðvandi.

„Þeir taka meiri áhættu út af hormónunum og eru með stærri radíus í kringum heimilið. Þannig við erum líka að sporna gegn því að þeir verði fyrir bíl, týnist eða þess háttar.”

Ef allt gengur að óskum eru kettir fljótir að jafna sig eftir geldingar-og ófrjósemisaðgerðir.Vísir/Einar

Dýralæknar mæla því eindregið með því að kattaeigendur geldi ferfætlingana sína.

„Það eru margir sem halda að þeir séu að gera kisunum greiða með því að „leyfa þeim að eignast kettlinga,“ en svo situr þú kannski uppi með fimm eða sex kettlinga, og svo þarf að finna heimili fyrir alla. Þannig það er í raun betra mál að reyna að sporna gegn þessari offjölgun í samfélaginu,” segir Snæfríður Aþena.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×