Innlent

Nota Suður­strandar­veg á morgun en leita fleiri leiða

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þeir Grindvíkingar sem ætla að fara í bæinn á morgun að vitja heimila sinna og ná í eignir fara um Suðurstrandarveg.
Þeir Grindvíkingar sem ætla að fara í bæinn á morgun að vitja heimila sinna og ná í eignir fara um Suðurstrandarveg. Vísir/Arnar

Suðurstrandarvegur verður áfram leiðin inn í Grindavík fyrir þá bæjarbúa sem þangað fara á morgun. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Þar segir að Vegagerðin verði á vaktinni og muni ryðja veginn ef þörf krefji. Slíkt sé líklegt miðað við veðurspá.

Nokkuð hefur borið á óánægju með skipulag verðmætabjörgunar í Grindavík sem hófst í dag. Meðal þess sem gagnrýnt hefur verið er að fólk sé látið keyra Suðurstrandarveg inn í bæinn.

Sjá einnig: Segir galið að aka Krýsuvíkurleiðina í að­stæðum eins og í morgun

„Grindavíkurbær er með þrjár virkar vegtengingar, Nesveg, Norðurljósaveg og Suðurstrandarveg. Enginn þessara vega er laus við vandamál þegar kemur að vetrarfærð og illa búin ökutæki munu verða til vandræða óháð undirbúningi viðbragðsaðila eða vali á akstursleið,“ segir í tilkynningu Almannavarna.

Af þessum þremur vegum sé Norðurljósavegur mikilvægastur, sökum nálægðar við Reykjanesbraut. Vegurinn sé laskaður vegna sprungumyndunar og mikillar umferðar. Hætt sé við því að ef allri umferð íbúa yrði beint um veginn myndi hann teppast vegna umferðar, óhappa, bilana eða annarra orsaka. 

Þá segir að umferð um Suðurstrandaveg verði minni umferð um skilgreind hættusvæði númer 1 og 3 á hættukorti Veðurstofunnar, sem sjá má hér að neðan. 

„Það er ljóst að Suðurstrandarvegurinn er langt frá því að vera ákjósanlegur. Hann hefur þó það umfram Nesveg að innviðir eru til staðar til að taka á móti miklum fjölda ökutækja á skömmum tíma.

Auk þess þýðir það að að viðbragðsaðilar, t.d. sjúkrabifreiðar, færu um Nes- eða Suðurstrandaveg sem talin er óásættanleg áhætta. Einnig myndi það þýða miklar tafir á sjálfu verkefninu sem lagt er mikið kapp á að gangi sem best.“

Þá þurfi forsvarsmenn fyrirtækja einnig að vitja eigna þeirra, en Nesvegur sé nýttur til þess svo minnka megi samkeyrslu þungaflutninga og íbúa. Það sé gert út frá því mati á þeim viðgerðum sem þurft hefur að ráðast í á vegakerfi Grindavíkur og þeim þunga og ágangi sem það þolir.

„Að þessu sögðu fer sífellt fram mat á aðstæðum og leitað er leiða til að besta þetta verklag til að hámarka öryggi og ávinning allra hlutaðeigandi.

Er því meðal annars leitað leiða til að fjölga akstursleiðum íbúa inn í Grindavík og ekki loku fyrir það skotið að akstursskipulag taki breytingum eftir því sem líður á verkefnið.“


Tengdar fréttir

Verði kannski komin á byrjunar­reit eftir tíu daga

Víðir Reynisson segir aðgerðir við verðmætabjörgun í Grindavík heilt yfir hafa gengið vel í dag, þrátt fyrir hnökra í upphafi dags. Hann segist vel skilja reiði og pirring Grindvíkinga. Með áframhaldandi landrisi aukist óvissan um hvað gerist næst. 

Miklar umferðartafir við Grindavík

Miklar umferðartafir eru við Grindavík. Hafa Grindvíkingar á leið í bæinn að sækja eignir þurft að snúa við. Vegagerðin mun senda fleiri snjóruðningstæki á vettvang. Einstefna um bæinn er til að koma í veg fyrir flöskuháls, samkvæmt bæjaryfirvöldum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×