Erlent

Liðs­menn Hamas ná aftur vopnum sínum í norður­hluta Gasa

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Palestínumenn á flótta frá norðurhluta Gasa.
Palestínumenn á flótta frá norðurhluta Gasa. epa/Mohammed Saber

Liðsmenn Hamas eru sagðir hafa snúið aftur til norðurhluta Gasa, þar sem þeir eru sagðir vinna að því að ná aftur stjórn og ná vopnum sínum fyrir frekari átök við Ísraelsher.

Þrátt fyrir stöðugar og harðar aðgerðir Ísraelsmanna eru samtökin enn sögð hafa stjórn yfir suðurhluta Gasa, þar sem flestir íbúar svæðisins hafast nú við, en lögleysa er sögð ríkja á miðhluta Gasa.

Guardian hefur eftir Eyal Hulata, sem fór fyrir þjóðaröryggisráði Ísrael þar til í janúar 2023, að fregnir berist nú af því að liðsmenn Hamas hafi náð að endurskipuleggja sig í norður- og miðhluta Gasa og séu aftur farnir að sinna löggæslustörfum þar og stjórna viðskiptum á svæðinu.

Undir þetta tekur sérfræðingurinn Michael Milstein hjá hugveitunni Institute for National Security Studies í Tel Aviv, sem segir Hamas hafa náð aftur yfirhöndinni á svæðum sem Ísraelsmenn tóku yfir eftir blóðuga bardaga í nóvember og desember.

„Hamas er enn til. Hamas-samtökin hafa komist af,“ segir hann.

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur heitið því að útrýma samtökunum. Þróun mála virðist í takt við spá forsætisráðherrans að það muni taka langan tíma að ná því markmiði.

Milstein bendir á að þrátt fyrir yfirlýsingar Ísraelshers um að tekist hafi að vinna á innri strúktúr samtakanna, sé málið ekki svo einfalt, þar sem ekki sé um að ræða hefðbundinn her heldur sveigjanlega skæruliðastarfsemi.

Hjálparsamtök sem vinna að því að dreifa matvælum, eldsneyti og öðrum nauðsynjum í norðurhluta Gasa segjast enn eiga í samskiptum við ráðamenn úr röðum Hamas en vald samtakanna yfir svæðinu virðist þó hafa veikst.

Í miðhluta Gasa hafi það ítrekað gerst að ráðist hafi verið á flutningabifreiðar sem flytja neyðaraðstoð og aðföngum verið rænt. Hálfgerð lögleysa ríki raunar víðast hvar nema í Rafah, í suðurhluta Gasa, þar sem lögregla á vegum Hamas viðhaldi enn lögum og reglu.

Ísraelsmenn segjast hafa drepið um það bil 9.000 af þeim 30.000 bardagamönnum sem kallaðir voru til átaka fyrir Hamas áður en átök brutust út í kjölfar árása samtakanna á byggðir Ísraelsmanna 7. október.

Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian um málið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×