Innlent

Rebbi lifði hrotta­legt banatilræðið af

Jakob Bjarnar skrifar
Þessi refur lét fara vel um sig í Húsdýragarðinum og kærði sig kollóttan um það þó frændi hans vestur á fjörðum stæði í stórræðum.
Þessi refur lét fara vel um sig í Húsdýragarðinum og kærði sig kollóttan um það þó frændi hans vestur á fjörðum stæði í stórræðum. vísir/vilhelm

Óhug sló á marga á Instagram þegar snjóruðningsmaður vestur á fjörðum sýndi þegar hann ók yfir ref nokkurn á brú. Refurinn komst ekki undan. Viðkomandi hefur verið tekinn á teppið af Vegagerðinni.

Vísi var send upptaka og svo virðist sem snjóplógsmaðurinn sé að stæra sig af drápinu. Myndbandsupptökuna má sjá hér neðar og eru viðkvæmir varaðir við myndefninu.

Sá sem sendi Vísi myndbandið sagði að sér væri fullkunnugt um að fjárbændum á svæðinu sýnist refir réttdræpir en það væri ólíðandi að menn væru að monta sig af svona nokkru á Instagram. „Ég dreg sterklega í efa að þeir megi stunda slíkt dráp í vinnu fyrir opinbera stofnun og það á eins ógeðfelldan máta og þetta.“

Sá benti á að eftir því sem hann kemst næst segir í dýraverndunarlögum að dýr skuli aflífa á eins sársaukalausan og skjótan máta og unnt væri. Og þeim hlíft við ótta.

Auðvelt er að taka undir þetta og Vísir setti sig í samband við Vegagerðina sem hafði þá fengið myndbandsbrotið í hendur.

„Þetta er bara háttsemi sem líðst ekki. Það er búið að tala vandlega við viðkomandi bílsstjóra og tryggja að svona lagað gerist ekki aftur,“ segir G. Pétur Matthíasson upplýsingastjóri Vegagerðarinnar.

Hann segir að bílsstjórinn hafi verið á vegum verktakafyrirtækis sem annast snjóruðning á svæðinu. „En við höfum samt rætt við hann,“ segir Pétur.

G. Pétur segir þetta alls ekki gott en hann hefur ótrúlegar fregnir að færa: „Refurinn lifði af. Það var snjór á tönninni og hann stóð þetta af sér. Hann lenti ekki undir tækinu heldur fór til hliðar við það.“

Refurinn skaut þannig andskota sínum ref fyrir rass. Ekki er það snjóruðningsmanninum að þakka að skolli er á lífi og vonandi hefur viðkomandi séð villur síns vegar eftir að G. Pétur og hans menn hjá Vegagerðinni lásu yfir hausamótunum á honum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×