Fótbolti

Fram lagði Val­sara í Úlfarsárdal

Smári Jökull Jónsson skrifar
Fram lagði Valsara í kvöld.
Fram lagði Valsara í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Fram vann 3-2 sigur á Val þegar Reykjavíkurliðin mættust í Reykjavíkurmótinu í kvöld. Úrslitaleikur mótsins fer fram annað kvöld.

Leikurinn í kvöld hófst fjörlega. Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Val yfir strax á 2. mínútu en Fram svaraði með þremur mörkum. 

Fred Saraiva jafnaði metin á 11. mínútu og kom Fram í 2-1 á 30. mínútu. Tveimur mínútum fyrir hálfleik skoraði síðan hinn bráðungi Viktor Bjarki Daðason en hann er fæddur árið 2008.

Staðan í hálfleik 3-1 en Patrick Pedersen minnkaði muninn í 3-2 strax í upphafi síðari hálfleiks. Fleiri urðu mörkin ekki en Fram jafnaði KR að stigum á toppi deildarinnar með sigrinum. Hann dugir þó ekki til að hirða toppsætið af Vesturbæingum sem spila úrslitaleik Reykjavíkurmótsins gegn Víkingum annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×