Innlent

Tug­milljóna mál skrif­stofu­stjóra fer fyrir Hæsta­rétt

Árni Sæberg skrifar
Hæstiréttur tekur mál Jóhanns fyrir.
Hæstiréttur tekur mál Jóhanns fyrir. Vísir/Vilhelm

Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni íslenska ríkisins um áfrýjunarleyfi í máli Jóhanns Guðmundssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Jóhanni voru dæmdar 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna niðurlagningar ráðherra á embætti hans.

Í nóvember síðastliðnum sneri Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms við og komst að þeirri niðurstöðu að ávirðingar á hendur Jóhanni hafi haft áhrif á ákvörðun ráðherra um að leggja stöðu hans niður. 

Héraðssaksóknari var með aðkomu hans að birtingu laga um laxeldi til rannsóknar.

Í ákvörðun Hæstaréttar segir að Landsréttur hafi talið að ráðuneytinu hefði ekki tekist að sanna að starfslok Jóhanns hefðu verið ákveðin 24. júní árið 2020 og lagt til grundvallar að ávirðingar hefðu ráðið því að ákveðið hefði verið 31. ágúst sama ár að leggja niður embætti hans, en Jóhann hefði verið sendur í leyfi 14. júlí það ár. 

Hafi reynt að koma sér hjá lögboðinni meðferð

Í dóminum hafi verið rakið að við þessar aðstæður hefði ráðherra borið að fara með málið í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þá hafi Landsréttur talið að ákvörðun ráðherra um að leggja niður embætti Jóhanns hefði verið ósamrýmanleg þeirri meginreglu stjórnsýsluréttar að óheimilt væri að undirbúningur og úrlausn máls miðuðu að því að komast hjá að fylgja lögboðinni málsmeðferð sem ætlað væri að tryggja réttaröryggi aðila. 

Ákvörðun ráðherra hefði því verið ólögmæt enda ekki byggð á málefnalegum sjónarmiðum.

Fordæmisgildi um réttindi ríkisstarfsmanna

Í ákvörðuninni segir að ríkið hafi byggt á því að úrslit málsins hafi fordæmisgildi og snúi að mikilsverðum hagsmunum þess þar sem það varði réttarstöðu skrifstofustjóra sem embættismanna vegna skipulagsbreytinga innan ráðuneytis. 

Þá hafi ríkið byggt á því að niðurstaða Landsréttar sé bersýnilega röng þar sem í dóminum sé blandað saman ákvörðun um niðurlagningu embættisins og hvort bjóða skyldi Jóhanni nýtt starf í ráðuneytinu. Auk þess hafi ríkið vísað til forsendna og niðurstöðu héraðsdóms í málinu.

Þá segir að að virtum gögnum málsins verði talið að dómur í því geti haft fordæmisgildi meðal annars um réttarstöðu ríkisstarfsmanna við niðurlagningu stöðu vegna skipulagsbreytinga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×