Innlent

Fá að fara heim á sunnu­dag og mánu­dag vegna breytts hætt­tu­mats

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Grindvíkingar fá að fara heim á sunnudag og mánudag.
Grindvíkingar fá að fara heim á sunnudag og mánudag. Vísir/Arnar

Vegna aukinna líkna á eldgosi við Grindavík og styttri fyrirvara samkvæmt hættumatskorti Veðurstofu Íslands þá hafa almannavarnir ákveðið að Grindvíkingar fái aðgang að íbúðarhúsnæðum sínum fyrr, eða í sex klukkustundir á sunnudag og mánudag.

Þetta segir í tilkynningu almannavarna. Að því loknu verði farið aftur í áður mótaða áætlun þar sem íbúar fáo vonandi lengri aðgang. Íbúar eru beðnir um að skrá sig aftur í gegnum rafrænt island.is. Skráningarfrestur er til klukkan 17 á morgun, laugardag og er nauðsynlegt að skrá sig vegna þessara tveggja daga.

Þá segir að svæðishólfin séu áfram þau sömu en tímahólfin verða eftirfarandi:

Sunnudagur kl 08:00 – 14:00:

V1 – V4 – G2 – H1 – H5 – I2 – A2 - A3 – B1

Sunnudagur kl 15:00 – 21:00:

G4 – V5 – L5 – H3 – H7 – I3 – S3

Mánudagur kl 08:00 – 14:00:

V2 – L2 – G5 – L4 – H4 – I4

Mánudagur 15:00-21:00:

L1 – V3 – G1 – H6 – I1 – H2

Hluti aðgerða muni fara fram eftir að myrkur skellur á og því hvetja almannavarnir fólk til að vera með höfuð- eða vasaljós ef ske kynni að rafmagnsbilun sé í þeirra svæðishólfi. Kort og svæðaskipting er hægt að sjá á þessu korti.

Akstursfyrirkomulagi hefur verið breytt en aðkoma að Grindavík verður bæði um Suðurstrandarveg og Nesveg en ekið er frá Grindavík um Grindavíkurveg. Þá þarf sérstaka heimild til notkuna á gámaflutningabifreiðum en ökutæki sem krefjast stærra meiraprófs eru leyfð.

Fólki er sagt að keyra beint að húsi sínu og það eigi ekki að fara um bæinn. Víða séu opnir skurðir þar sem unnið er að viðgerðum og mikið af sprungum sem ekki er búið að loka en reynt hefur verið að girða af.

 Fólk sem ætlar að sækja lykla sína í slökkvistöðina er bent á að senda tölvupóst þess efnis á slokk@grindavik.is. Með því að senda tölvupóst sé hægt að koma í veg fyrir að bíða í röð eftir að fá lykilinn afhentan. Íbúar séu beðnir um að senda hvenær þeir komi ásamt heimilisfangi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×