Ákall frá mastrinu Elissa Phillips skrifar 3. febrúar 2024 15:01 Það eru komnir fimm mánuðir síðan við Anahita Babaei tókum þá afdrifaríku ákvörðun að stöðva för Kristjáns Loftssonar á hvalveiðar með því að koma okkur fyrir í möstrum hvalveiðibátanna í Reykjavíkurhöfn. Þrátt fyrir að mikill almennur stuðningur hafi verið við aðgerðir okkar þá þóttu sumum þetta vera dæmi um útlendinga sem voru að segja Íslendingum fyrir verkum. Hvað svo sem fólki finnst um okkur þá vakti þetta athygli á málstaðnum og gaf fólki tækifæri til að ræða það sín á milli hver svo sem skoðun þeirra var. Peter Wilson (@foilistpeter). Barátta okkar er ekki við Íslendinga. Markmið okkar er að vera rödd hvalanna sem líða óbærilegar kvalir vegna aðgerða okkar mannanna. Margt hefur gerst síðan þá. 24 langreyðar voru drepnar árið 2023, margar þeirra skotnar oftar en einu sinni sem stríðir gegn lögum um velferð dýra. Mynd af kylfullri hvalkýr á plani hvalstöðvarinnar þar sem fullvaxinn kálfur hennar var dreginn út úr maga hennar náði heimsathygli. (með honum fór tala upp í 25 dauða hvali) Fjöldi íslendinga gengu til liðs við baráttuna gegn hvalveiðum og frumvarp um bann við hvalveiðum var lagt fyrir Alþingi. Nú heldur umræðan áfram meðal stjórnmálamanna. Á meðan mannfólk rökræðir um áhrif hvalveiða á ímynd Íslands, ferðamennsku og efnahag, þá eru þessar 20 metra langar skepnur þarna úti að synda um heimsins höf eins og þeim er ætlað. Hefur þú einhvern tíma heyrt söng langreyða? Þær sjást sjaldan á yfirborði sjávar svo að sjá þær er sjaldgæfur heiður. Þær geta lifað í meira en 90 ár svo það er líklegt að sumar þeirra sem Kristján Loftsson hefur murkað lífið úr hafa lifað á þessari jörð lengur en hann sjálfur. Peter Wilson (@foilistpeter). Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. hefur nú sótt um endurnýjað 5 ára leyfi til hvalveiða með ósk um framlengingu til 10 ára. Hann frestaði því að sækja um með þá von að matvælaráðherra yrði gert að segja af sér en notar nú tækifærið þar sem hún er komin í veikindaleyfi. Við getum hrópað frá toppi bátanna eins hátt og við getum en örlög þessara dýraverða ráðin af stjórnmálamönnum. Ef þér þykir þetta óréttlátt þá getur þú líka beitt þér fyrir hvalina. Þú getur skrifað ráðamönnum. Þú getur sniðgengið og fordæmt þær verslanir sem seldu hvalrengi af langreyðum nú á þorranum. Hver einasta rödd sem talar fyrir hvalina hjálpar þeim í baráttunni fyrir því að fá að vera í friði og öryggi frá sprengjuskutlum. Höfundur er náttúruverndarsinni og aktívisti. Call from the crow’s nest 5 months ago, Anahita and I took drastic measures to try to stop Loftsson from hunting and killing fin whales by occupying his whaling ships to keep them in Reykjavik port. While our actions were met with support; to many, this was another example of foreigners telling an Icelander what to do. Whatever people think of us, it raised awareness and gave people a forum to talk about the issue, whichever side of the argument they were on. Our fight is not with Icelandic people. Our goal is to give a voice to the whales who are the ones to suffer due to human behaviour. A lot has happened since then. 24 whales were killed in 2023, many of them shot multiple times, in breach of animal welfare regulations. The image of the pregnant female with her fully grown calf being torn from her belly hit the newsstands (this would in fact make it 25 deaths). Many Icelanders joined anti-whaling protests and a bill was put before parliament calling for an end to the hunt for good. The arguments rage on between politicians. While humans discuss whaling’s impact on Iceland’s reputation, tourism and economy, these 20m long giants are out there, roaming the oceans as they should be. Have you ever heard a fin whale song? They hardly ever breach so to spot one in the open ocean is a rare privilege. They can live up to 90 years so it’s likely that some of the animals slaughtered have been on this Earth longer than their killer - Kristjan Loftsson. The CEO of Hvalur Hf has now put in his request for a new 5-year license to kill whales, with a preference for a full decade. He delayed applying in the hope that the Minister for Fisheries would be ousted from government and has done so as soon as she’s off on sick leave. We can shout from the top of the boats as loud as we like but the fate of these creatures will be decided by the politicians. If you also feel this injustice; you too can lend your voice to the whales. You can write to your politicians. You can boycott and denounce the selling of whale blubber sold in your local shops. Every voice that speaks up on their behalf can help keep these peaceful beings safe from the exploding harpoons. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hvalveiðar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Yfirlýsing frá Anahitu Babaei og Elissu Bijou Að næra og huga að heilbrigði fólks er okkur eðlislægt sem samborgarar og manneskjur. Við höfum mætt mikilli hlýju og velvild frá Íslendingum og erum innilega þakklátar og meyrar vegna þess. Þó að það sé gott að sjá svo mikla fjölmiðlaumfjöllun og athygli á friðsamlegum mótmælaaðgerðum sem við stóðum fyrir á hvalveiðibátum Hval 8 og Hval 9, megum við til með að minna á aðal viðfangsefnið. 9. september 2023 10:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þú getur leyft þér það Rannveig Borg Skoðun Katrín eða Halla Hrund? Reynir Böðvarsson Skoðun Útrýming mannsins á RÚV Vala Hafstað Skoðun Með réttlætið að leiðarljósi Bergdís Sigurðardóttir Skoðun Sterk, rökföst og réttsýn rödd Jakob S. Jónsson, Skoðun Þarf að rífa eina niður til að hífa mig upp? Þórunn Rakel Gylfadóttir Skoðun Látum frambjóðendur njóta sannmælis Vésteinn Ólason Skoðun Helga Þórisdóttir - Minn forseti Valdimar Óskarsson Skoðun Almannahagsmunir, fúsk eða spilling? Brynjar Níelsson Skoðun Fylgishrun Höllu Hrundar staðfest Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Með réttlætið að leiðarljósi Bergdís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Katrín eða Halla Hrund? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Sterk, rökföst og réttsýn rödd skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir - Minn forseti Valdimar Óskarsson skrifar Skoðun Styðjum Katrínu Jakobsdóttur Gerður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvaðan kemur þessi ótti við tilfinningar? Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Lyf og dáleiðsla Hannes Björnsson skrifar Skoðun Hvað þarf til að forseti beiti málskotsrétti? Salvör Nordal skrifar Skoðun Kosningar nálgast Halldóra Æsa Aradóttir skrifar Skoðun Auðlindirnar okkar Hólmfríður Sigþórsdóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Almannahagsmunir, fúsk eða spilling? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Fagleg uppbygging myndlistar í forgrunni Tinna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Breytum reiði í gleði Natan Kolbeinsson skrifar Skoðun Látum frambjóðendur njóta sannmælis Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Blóðugt upp fyrir axlir Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Greind eða dómgreindarskortur Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Stafrænt samstarf sveitarfélaga þarf aukið vægi Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Fyrir ykkur, Blessing, Mary og Esther Guðrún Árnadóttir,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar Skoðun Þarf að rífa eina niður til að hífa mig upp? Þórunn Rakel Gylfadóttir skrifar Skoðun Hver á að setja málið á dagskrá? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Góður málsvari íslenskrar menningar Kristín Huld Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er hægt að fá bólusetningu gegn "Besserwisserum"? Eygló Halldórsdóttir skrifar Skoðun Söfn í þágu fræðslu og rannsókna Sigurjón Baldur Hafsteinsson skrifar Skoðun Um dánaraðstoð Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar Skoðun Meðmælabréf með forsetaefni Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Sameiningartákn? Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun „Hlutdrægni” Ríkisútvarpsins og „hnignun” íslenskunnar Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Fylgishrun Höllu Hrundar staðfest Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hún Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sósíalismi sem trúarbrögð Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar Sjá meira
Yfirlýsing frá Anahitu Babaei og Elissu Bijou Að næra og huga að heilbrigði fólks er okkur eðlislægt sem samborgarar og manneskjur. Við höfum mætt mikilli hlýju og velvild frá Íslendingum og erum innilega þakklátar og meyrar vegna þess. Þó að það sé gott að sjá svo mikla fjölmiðlaumfjöllun og athygli á friðsamlegum mótmælaaðgerðum sem við stóðum fyrir á hvalveiðibátum Hval 8 og Hval 9, megum við til með að minna á aðal viðfangsefnið. 9. september 2023 10:00
Skoðun Um dánaraðstoð Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar