Körfubolti

Martin mataði fé­laga sína á stoð­sendingum

Siggeir Ævarsson skrifar
Martin Hermannsson er óðum að komast í sitt fyrra form með Alba Berlin
Martin Hermannsson er óðum að komast í sitt fyrra form með Alba Berlin vísir/Getty

Martin Hermannsson átti sennilega sinn besta leik með Alba Berlín í dag eftir að hann gekk til liðs við félagið í janúar. Martin gaf níu stoðsendingar og skoraði þrettán stig, sem er það mesta sem hann hefur náð í báðum tölfræðiflokkum hingað til.

Alba Berlín tók á móti Ulm í þýsku úrvalsdeildinni í dag og urðu lokatölur leiksins 98-88 Alba í vil. Martin skilaði góðu dagsverki á þeim rúmu 24 mínútum sem hann spilaði og virðist vera óðum að finna sitt gamla form eftir erfið meiðsli.

Martin og félagar eru í þriðja sæti þýsku deildarinnar. Ulm eru í humátt á eftir í því 5. og sigurinn í dag því afar mikilvægur fyrir Alba Berlín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×