Fótbolti

Vals­menn fóru létt með Fylki í Lengju­bikarnum

Siggeir Ævarsson skrifar
Patrick Pedersen skoraði tvö í kvöld
Patrick Pedersen skoraði tvö í kvöld Vísir/Diego

Valsmenn fóru vel af stað í fyrstu umferð Lengjubikarsins í kvöld þegar þeir völtuðu yfir Fylki, 4-0.

Markahrókurinn Patrick Pedersen kom Val á bragðið snemma í fyrri hálfleik sem reyndist eina markið fyrir hlé. Flóðgáttirnar brustu svo í seinni hálfleik þar sem Jónatan Ingi Jónsson tvöfaldaði forskotið á 64. mínútu.

Pedersen var svo aftur á ferðinni á 82. mínútu og gerði í raun út um leikinn en Tryggvi Hrafn Haraldsson innsiglaði svo sigurinn með laglegu marki rétt fyrir leikslok.

Valsmenn byrja Lengjubikarinn því á sigri, en í A-riðli eru Fram, Fylkir, ÍBV, ÍR, Valur og Þróttur Reykjavík.

Næstu leikir í riðlinum fara fram föstudaginn 9. febrúar. Þá taka ÍR-ingar á móti Þrótti og fram tekur á móti Fylki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×