Innlent

„Skólinn í sjálfu sér kemur ekkert nærri þessu“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, segir fyrirhugað verkfall nemenda í Hagaskóla á morgun algjörlega sjálfsprottið hjá nemendum og að skólinn komi ekkert að skipulagningu þess. 
Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, segir fyrirhugað verkfall nemenda í Hagaskóla á morgun algjörlega sjálfsprottið hjá nemendum og að skólinn komi ekkert að skipulagningu þess. 

Hóp­ur grunn­skóla­nema í Haga­skóla í Reykjavík hef­ur boðað til verkfalls á morgun til stuðnings Palestínu. Skólastjóri segist ekki gera sér grein fyrir umfangi verkfallsins og hvort fimm, fimmtíu eða fimm hundruð nemendur muni ganga út úr tímum á morgun. Hann fagnar því að ungt fólk sé hugsandi, taki afstöðu og láti sig samfélagsleg málefni varða. 

Nemendur hyggjast ganga út úr tíma á morgun, þriðjudag, klukkan 10:30. Fyrirhuguð mótmæli munu fram á Austurvelli klukkan 11.

„Við viljum fá sem flesta til að taka þátt til að sýna að nemendur á Íslandi standa með Palestínu og kalla eftir vopnahléi,“ segir á Instagram síðu sem stofnuð var til upplýsinga um verkfallið.

Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla, segist í samtali við fréttastofu ekki hafa miklar upplýsingar um fyrirhugað verkfall umfram það sem birst hefur í fjölmiðlum og í auglýsingum á Facebook. Hann hafi þó rætt við nokkra nemendur skólans sem virðast vera í forsvari fyrir verkefnið.

„Almennt finnst mér frábært að ungt fólk taki afstöðu, séu hugsandi og láti sig samfélagsleg málefni verða,“ segir Ómar.

„En þau vita líka alveg að þetta er ekki skólaverkefni. Skólinn í sjálfu sér kemur ekkert nærri þessu.“

5, 50 eða 500?

Rúmlega 600 nemendur eru í Hagaskóla og segist Ómar ekki hafa neinar upplýsingar um hversu umfangsmikið verkfallið verði.

„Við höfum í raun ekki hugmynd um hversu margir munu taka þátt, hvort það verði fimm, tíu, fimmtíu eða fimmhundruð. Við rennum algjörlega blint í sjóinn. Það er pínu flókið varðandi skipulagningu, við þurfum auðvitað að útbúa mat og annað. En í stóra samhenginu skiptir það í sjálfu sér engu máli.“

Rúmlega 600 nemendur eru í Hagaskóla. Nemendur hyggjast ganga út úr tíma á á morgun klukkan 10:30. Vísir/Vilhelm

Að sögn Ómars verða engar afleiðingar fyrir þá nemendur sem taka þátt í verkfallinu en eðli málsins samkvæmt verði merkt við nemendur sem yfirgefa tíma, til að vita hversu margir séu í húsi og svo framvegis. Þá á hann von á að einhverjir foreldrar munu óska eftir leyfi fyrir börn sín. 

Jákvætt að ungt fólk myndi sér skoðanir á heimsmálum

Aðspurður um hvort átökin í Miðausturlöndum og ástandið á Gaza sé mikið til umræðu í skólanum, segir Ómar að vissulega fari umræðan ekki fram hjá neinum og sé sérstaklega fyrirferðarmikil á samfélagsmiðlum.

„Ungt fólk er með mjög ríka réttlætiskennd og er almennt réttsýnt fólk sem má ekkert aumt sjá. Það er alveg eðlilegt að þau verði vör við þetta og myndi sér skoðanir á því sem að gerast. Það er bara mjög jákvætt.“

Þá á Ómar ekki von á að kennarar taki þátt í verkfallinu á morgun. Búið er að boða til mótmæla klukkan 15 í dag og segist Ómar gera ráð fyrir að kennarar mæti frekar þangað. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×