Fótbolti

Tveir tví­tugir tryggðu Fjölni sigur gegn HK

Smári Jökull Jónsson skrifar
Fjölnir vann sigur í Lengjubikarnum í dag.
Fjölnir vann sigur í Lengjubikarnum í dag. Facebooksíða Knattspyrnudeildar Fjölnis

Lengjudeildarlið Fjölnis vann góðan sigur á liði HK í Lengjubikarnum í dag.

HK leikur í Bestu deildinni og mætir KA í fyrsta leik í apríl. Fjölnir er hins vegar í Lengjudeildinni.

Það var þó ekki að sjá að HK væri deild ofar í leiknum í dag. Kristófer Dagur Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Fjölni í fyrri hálfleik og staðan 2-0 í hálfleik.

Í síðari hálfleik skoraði Daníel Ingvar Ingvarsson þriðja mark Fjölnis en líkt og Kristófer Dagur er Daníel fæddur árið 2004 og því tvítugur á þessu ári.

Lokatölur 3-0 og Fjölnir og KR því bæði með þrjú stig eftir að tveimur leikjum er lokið í riðli liðanna í Lengjubikarnum. HK hefur tapað fyrir báðum þessum liðum og því í neðsta sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×