Innlent

Stór­bruni í húsi á horni Fells­múla og Grens­ás­vegar

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd frá vettvangi sem sýnir eldinn vel.
Mynd frá vettvangi sem sýnir eldinn vel.

Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað út vegna elds í húsi á mótum Fellsmúla og Grensásvegar í Reykjavík. 

„Eins og staðan er núna erum við aðeins að ná að slá þessu niður, og við skulum vona að við getum haldið því þannig. Í þessu húsi er mikill eldsmatur, en við erum að vonast til að ráða við þetta áður en eitthvað verra gerist,“segir Stefán Kristinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, um eldsvoðann við Fellsmúla og Grensásveg sem hófst síðdegis í dag.Allt tiltækt lið vinnur við að slökkva eldinn. Slökkviliðið hefur lokað Fellsmúla og Grensásvegi.

Stefán segist ætla að leyfa sér að vera bjartsýnn með áframhaldið.

Mynd frá vettvangi.Vísir/Sigurjón

„Hann jókst bara. Það hefur kviknað í einhverju sem var ekki gott. Þetta er bara orðinn mikill eldur núna.“ sagði Stefán við fréttastofu fyrr í kvöld. Þegar eldurinn blossaði skyndilega upp og jókst umtalsvert.

„Þetta er bara verra en þetta var,“ sagði hann. „Við ætlum bara að berjast við eldinn og slökkva þetta sem fyrst. Það er okkar aðalmál.“

Eldurinn er í iðnaðarhúsnæði, en í húsinu er til að mynda að finna hjólbarðaverkstæði N1 og Slippfélagið. Símaver Hreyfils er líka í húsinu, en starfsemi þess liggur niðir. Fólki er bent á að nota frekar appið til að panta leigubíl.

Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að samkvæmt vitneskju sinni hefðu allir komist óhultir úr byggingunni.

„Okkur gengur bærilega. Við höldum að við séum búin að einangra hann við tvö bil hérna. Við höldum að það sé lítil eða engin hætta að þetta fari í stóra húsið og ekki heldur í tengibyggingar til norðurs.“

Hann sagði ekki liggja fyrir að svo stöddu hvaðan eldurinn kviknaði. „Það er svolítið erfitt að átta sig á því. Eins og þú sérð er mikill reykur. Og við erum ekki að senda mennina djúpt inn heldur reynum við að slökkva þetta aðeins úr fjarlægð.“

Fólk hefur verið hvatt til að loka gluggum í nágrenni við eldinn.Slökkviliðið hefur kallað út auka mannafla sem var á frívakt vegna eldsins og berst enn hörðum höndum við að ráða niðurlögum hans.

Fréttin hefur verið uppfærð. Beinu streymi Vísis af vettvangi er lokið.

Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun
Viktor Freyr/Skuggi Ljósmyndun


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×